Lúxus hafragrautur í krukku

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér erum við með dýrindis hafragraut úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is. Hafragrautur stendur alltaf fyrir sínu og þessi er í senn bæði einstaklega bragðgóður og gífurlega hollur.

„Það er ofureinfalt að útbúa kaldan hafragraut til að hafa með sér inn í næsta dag, hvort sem það er í morgunverð, millimál eða hádegisverð. Það tekur örskamma stund að hræra fáum hráefnum saman í krukku, setja lokið á og toppa síðan með einhverju gómsætu næsta dag“, segir Berglind um þennan graut sem þið megið til með að prófa.

Kaldur hafragrautur

Uppskrift dugar í eina krukku

Hafragrautur yfir nótt

  • 40 g Til hamingju tröllahafrar
  • 1 msk. Til hamingju chiafræ
  • 120 ml haframjólk
  • 50 g lífræn hrein jógúrt
  • 1 tsk. BioToday hunang

Toppur á hafragraut

  • Bláber
  • Til hamingju granóla
  • 1 tsk. BioToday möndlusmjör
  1. Setjið allt í krukkuna, hrærið saman, setjið lok/plast yfir og geymið í kæli í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt. Toppið með granóla, bláberjum og möndlusmjöri.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert