Nýjasta pítsuæðið á Íslandi

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér gefur að líta pítsu úr smiðju Berglindar Heiðars á Gotteri.is en þar notar hún burrata-ost sem þykir eitt það allra besta sem hægt er að setja á pítsu og skilgreinist nú sem nýjasta æðið.

„Burrata-ostur er einn af þessum sem lætur mann kikna í hnjánum. Það er svo gott að nota hann í ýmsa matargerð og á pítsur er hann guðdómlegur. Ég smakkaði fyrst burrata-ost í Friðheimum fyrir nokkrum árum og eftir það varð ekki aftur snúið. Það hefur hins vegar reynst þrautin þyngri að nálgast þessa dásemd en nú hefur Mjólkursamsalan hafið sölu á þessum osti í lausasölu og ég mæli með að þið laumið ykkur alltaf í eina ef ekki fleiri dósir þegar hann er til í verslunum!“

Burrata-pítsa

Uppskrift fyrir eina pítsu (fyrir 1-2 manns)

  • Pítsudeig að eigin vali
  • pítsusósa að eigin vali
  • óreganó
  • pítsuostur frá Gott í matinn
  • grænt basilpestó (nokkrar teskeiðar)
  • rautt chilipestó (nokkrar teskeiðar)
  • klettasalat (1 lúka)
  • 100 g piccolo-tómatar (skornir niður)
  • 1 burrata-kúla frá Gott í matinn
  • góð ólífuolía
  • balsamgljái
  • fersk basilíka (söxuð)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 220°C og fletjið deigið út þar til það verður um 30 cm í þvermál.
  2. Komið deiginu fyrir á bökunarplötu, smyrjið pítsusósu yfir allt og setjið pítsuost og óreganó eftir smekk, brjótið næst aðeins upp á kantana.
  3. Bakið í um 15 mínútur eða þar til kantarnir gyllast vel og takið þá úr ofninum.
  4. Setjið smá grænt og rautt pestó hér og þar um pítsuna, næst klettasalat á hana miðja og dreifið úr tómötunum.
  5. Komið þá burrata-kúlunni fyrir á miðjunni og setjið ólífuolíu og balsamgljáa yfir allt og loks smá basiliku.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert