Brasseraðir lambaskankar með geggjaðri sósu

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Lambaskankar eru í uppáhaldi hjá mörgum enda einstaklega mjúkur og góður biti. Hér eru þeir framreiddir með dýrindis sósu sem ætti að slá í gegn alls staðar.

Lambaskankar

  • 1 tsk. sjávarsalt
  • ½ tsk. svartur pipar, nýmalaður
  • 4 lambaskankar
  • 3-4 msk. ólífuolía
  • 3 rauðlaukar
  • 2 rósmaríngreinar
  • 3 tímíangreinar
  • 200 g sveppir, grófskornir
  • 1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt
  • 15 g smjör, ósaltað

Rauðvínssósa

  • 2 skallottulaukur
  • 1-2 msk olía
  • 2 1/2 dl rauðvín eða krækiberjasaft
  • 2 rósmaríngreinar
  • 2 tímíangreinar
  • 2 1/2 dl kjúklingasoð eða lambasoð
  • 1-2 msk smjör
  • Sjávarsalt
  • svartur pipar

Aðferð:

Lambaskankar

  1. Hitið ofn í 150°C.
  2. Kryddið lambaskankana með salti og pipar, látið í eldfast mót ásamt kryddjurtum og hellið olíu yfir. Eldið í 1 ½–2 klst. eða þar til kjötið fellur auðveldlega af beininu.
  3. Setjið rauðlauk heilan með hýðinu með og eldið með í u.þ.b 1 klst.
  4. Hitið pönnu með 1 msk. af olíu og steikið sveppina í 5-6 mín., bætið við hvítlauk og smjöri, steikið áfram í 1 mín. og bragðbætið sveppina með salti og pipar.
  5. Takið hýðið af rauðlauknum og skerið í fernt. Berið lambaskankana fram með rauðlauk, steiktu sveppunum og rauðvínssósu.

Rauðvínssósa

  1. Skerið skallottulauk smátt og steikið varlega upp úr olíu í 3-4 mínútur.
  2. Bætið við rauðvíni, rósmarín og timjan og sjóðið niður um helming.
  3. Bætið við soði, sjóðið aftur niður um helming, sigtið svo frá kryddið og laukinn.
  4. Setjið sósuna aftur í pottinn, smakkið til með salti og pipar, bætið smjörinu við og hrærið vel þar til smjörið hefur bráðnað.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert