Tulipop x Nói-Síríus páskaeggin hitta í mark

Fyrirtækið Tulipop var stofnað af Signýju Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur árið 2010 með það að markmiði að búa til séríslenskan ævintýraheim byggðan á teikningum Signýjar. Síðan þá hefur Tulipop-heimurinn og persónurnar sem þar búa verið í stöðugri þróun og notið vaxandi hylli barna og fullorðinna á Íslandi sem og erlendis.

Þær Signý og Helga hafa lagt áherslu á að þróa jákvæðar og skemmtilegar sögur í kringum Tulipop-heiminn, sem hafa nú litið dagsins ljós í nýju teiknimyndaþáttaröðinni „Ævintýri Tulipop“, auk þess sem gefnar hafa verið út tvær myndskreyttar barnabækur í bókaröðinni „Sögur frá Tulipop“. Tulipop-sögurnar fjalla um fjölbreytileikann og vináttuna á ævintýraeyju, en þar eru í forgrunni aðalpersónurnar fjórar: loðni og vinalegi Freddi, sveppasystkinin Búi og Gló, litríka Maddý, en auk þeirra kemur vitri öldungurinn Herra Barri (sem er tré) reglulega við sögu. Þau eru öll ólík bæði í útliti og skapgerð. Á Tulipop eru kvenpersónur sterkar og staðalímyndir ekki til. Enginn er fullkominn, allir hafa sína kosti og galla en það sem mestu máli skiptir er kærleikurinn og vináttan. Allar sögur sem gerast á Tulipop eru fullar af fjöri, óvæntum og fyndnum uppákomum og við fylgjumst með vinunum læra um lífið og tilveruna, hvert annað og síðast en ekki eyjuna.

Að sögn Signýjar hefur það verið draumur í mörg ár að fara í samstarf við Nóa-Síríus og gera Tulipop-páskaegg. „Eins og flestir Íslendingar er ég alin upp við að fá Nóa-páskaegg um páskana og ég man hvað mér þótti gaman að fá að velja mér Strumpaegg. Það var svo fyrir sirka tveimur árum að leiðir lágu saman með markaðsteymi Nóa-Síríusar og við fórum að ræða möguleika á samstarfi. Hugmyndin að Tulipop-páskaeggjum kviknaði fljótt og teymið hjá Nóa var spennt að styðja við íslenskt hugvit og hönnun og skreyta eggin sín með Tulipop-fígúrum,“ segir Signý og bætir við að þetta hafi verið einstaklega skemmtilegt samstarf.

„Teymið hjá Nóa-Síríusi hefur verið frábært í samstarfi og ég vona að við gerum fleiri skemmtileg verkefni í framtíðinni. Það er líka svo gaman að sjá hvað eggin eru vinsæl hjá krökkunum en þau rjúka beinlínis út úr verslunum og mér skilst að ákveðnar tegundir séu við það að seljast upp þannig að það er um að gera að hafa hraðann á og tryggja sér eintak.“

Eins og Signý vitnaði í hér að ofan þá nutu Strumpaeggin mikilla vinsælda og margir sem söfnuðu fígúrunum. Allar fjórar aðalpersónurnar í Tulipop-heiminum eru fáanlegar á eggjunum, en það eru sveppasystkinin Búi og Gló, auk Fredda og Maddýjar. Signý segir að þeim hafi fundist mikilvægt að hafa allar aðalpersónurnar í boði til að sýna breidd ævintýraheimsins en líka svo allir gætu valið sinn uppáhaldskarakter.

Í boði eru þrjár tegundir af eggjum, þ.e. mjólkursúkkulaðiegg í stærð 3 og stærð 4, og svo dökkt egg nr. 4 sem er vegan og hentar þeim sem eru með mjólkuróþol. Viðtökurnar hafa verið einstaklega góðar og því má fastlega gera ráð fyrir að Tulipop-eggin verði einnig fáanleg á næsta ári og þá kannski með öðrum fígúrum ofan á.

Verður hægt að safna fígúrunum

„Fígúrurnar eru úr plasti en hugmyndin er að þær séu eigulegar og safnanlegar. Sjálf hef ég frá barnsaldri haft gaman af því að safna skemmtilegum fígúrum og stilli slíkum fígúrum enn upp í hillu heima hjá mér. Vonandi eiga Tulipop x Nóa-Síríusar-fígúrurnar eftir að lifa lengi á íslenskum heimilum og gleðja þá sem hafa gaman af því að umkringja sig skemmtilegum ævintýrapersónum, segir Signý en óhætt er að segja að Tulipop-heiminum hafi vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum.

Spennandi tímar fram undan

„Það er margt spennandi á döfinni en það urðu hjá okkur stórtíðindi fyrr á þessu ári þegar við lukum framleiðslu á okkar fyrstu stóru teiknimyndaþáttaröð og var hún heimsfrumsýnd í Sjónvarpi Símans Premium 1. febrúar síðastliðinn. Um er að ræða eina metnaðarfyllstu íslensku teiknimyndaþáttaröð fyrir börn sem framleidd hefur verið um árabil og er gaman að segja frá því að hún er að fá algjört metáhorf hjá Símanum en áhorfið hefur farið fram úr björtustu vonum. Þáttaröðin er nú að byrja ferðalag sitt um heiminn en næst mun hún verða sýnd á norsku hjá NRK í Noregi, á finnsku hjá YLE í Finnlandi, auk þess að vera á leið til Mið-Austurlanda, Kanada og Suður-Afríku svo dæmi séu tekin. Samhliða þessu erum við að vinna í spennandi verkefnum sem snúa að því að koma Tulipop-hugverkinu á markað í gegnum fjölbreytta miðla, svo sem bækur, varning, leiki og svo mætti lengi telja,“ segir Signý að lokum og við bendum þeim á, sem vilja næla sér í egg, að hafa hraðar hendur enda nokkuð ljóst að eggin verða uppseld fyrir páska.

Tulipop-teiknimyndaþáttaröðin „Ævintýri Tulipop“ er nú aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium, og nálgast má Tulipop-barnabækurnar og fallegu og nytsamlegu Tulipop gjafavörurnar í verslunum um allt land og í vefverslun Tulipop (www.tulipop.is).

Signý Kolbeinsdóttir, hönnuður og annar eigandi Tulipop.
Signý Kolbeinsdóttir, hönnuður og annar eigandi Tulipop.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert