Eva Laufey ráðin markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið ráðin sem markaðs-og upplifunarstjóri …
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið ráðin sem markaðs-og upplifunarstjóri Hagkaups. Ljósmynd/Aðsend

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir hefur verið ráðin sem markaðs- og upplifunarstjóri Hagkaups. Eva Laufey er viðskiptafræðingur að mennt og hefur starfað sem dagskrárgerðarmaður á Stöð 2 undanfarin 9 ár. Þar hefur hún komið að dagskrárgerð í sjónvarpi, meðal annars í Íslandi í dag og Blindum bakstri. Einnig hefur Eva komið að dagskrárgerð í útvarpi og er annar þáttastjórnandi í þáttunum Bakaríið á Bylgjunni.

Eva tekur við nýrri stöðu hjá Hagkaupi, sem er liður í þeirri stefnu félagsins að bæta upplifun viðskiptavina og þróa stafræna þjónustu við viðskiptavini.

Hagkaup opnaði nýlega vefverslun með snyrtivörur og stefnan er að auka enn frekar við vöruúrval og þjónustu í versluninni. „Ég hlakka til að takast á við ný og ögrandi verkefni. Það er virkilega spennandi að fá að leiða uppbyggingu, sem er þegar hafin hjá Hagkaupi í átt að stafrænni og enn betri þjónustu við viðskiptavini Hagkaups og styrkja upplifun þeirra í verslun og á stafrænum miðlum. Ég þekki Hagkaup vel og hlakka til að nýta mína þekkingu og reynslu við að gera Hagkaup að enn skemmtilegri verslun,” segir Eva Laufey Hermannsdóttir.

„Við erum mjög ánægð með að fá Evu Laufeyju til liðs við okkur. Við höfum átt ánægjulegt samstarf við hana í gegnum árin, við vinnslu á fjölda verkefna. Við erum sannfærð um að Eva sé rétta manneskjan til þess að halda áfram að skapa með okkur ævintýralega upplifun í verslun, þar sem skemmtilegast er að versla. Það eru spennandi tímar framundan hjá Hagkaupi og mörg verkefni í vinnslu sem auka þjónustu og upplifun viðskiptavina enn frekar. Eva verður lykilaðili í úrvinnslu á þeim verkefnum,” segir Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups.

Eva Laufey hefur störf hjá Hagkaupi síðla sumars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert