Lax í kókossósu með rauðu karrí og grænmeti

Ljósmynd/Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal

Lax og kókos passar svakalega vel saman og svo er líka ofboðslega bragðgott að bæta sítrónugrasi saman við ef maður vill. Það gerir kraftaverk fyrir rétti af þessu tagi.

Lax í kókossósu með rauðu karríi og grænmeti

Fyrir fjóra

  • 500 g lax (500-700 g)
  • 1 laukur, smátt saxaður
  • 2 hvítlauksrif, smátt skorin
  • 1 gulrót, skorin í þunnar sneiðar
  • 1 lítill bútur af engifer, skorinn smátt
  • 2 stilkar sítrónugras, skornir smátt
  • 1 rautt chili, smátt skorið
  • 1 rauð paprika, smátt skorin
  • 2 msk. olía
  • 250 ml kókosmjólk
  • 250 ml matreiðslurjómi frá Gott í matinn
  • 1 grænmetis- eða fiskikraftsteningur (1-2 stk)
  • 2 msk. rautt karrípaste, eða eftir smekk
  • 1 msk. karríduft
  • 1 box sykurbaunir (sugar snap peas)
  • salt og pipar eftir smekk
  • saxað kóríander eða aðrar ferskar kryddjurtir

Aðferð:

  1. Skerið laxinn í 2-3 cm ræmur og setjið til hliðar.
  2. Skerið hvítlauk, lauk, gulrót, engifer, sitrónugras, chili og papriku í litla bita.
  3. Hitið olíuna á pönnu eða í góðum potti.
  4. Setjið grænmetið á pönnuna og látið það brúnast í olíunni í smástund.
  5. Hellið kókosmjólk og matreiðslurjóma yfir og bætið grænmetiskrafti saman við.
  6. Hrærið saman við karrípaste og karríduft.
  7. Lækkið hitann og látið þetta sjóða á vægum hita í a.m.k. 15 mínútur.
  8. Smakkið.
  9. Sósan má alveg malla lengur. Því lengur sem hún fær að malla, því betur koma allar bragðtegundirnar fram.
  10. Steikið laxabitana í olíu og smakkið til með salti og pipar. Setjið til hliðar.
  11. Setjið sykurbaunirnar í kókossósuna og smakkið til.
  12. Leggið laxabitana varlega út í.
  13. Það er kjörið að bera fram hrísgrjón með þessum rétti en einnig er hægt að bera hann fram eins og hann er.
  14. Skreytið með kóríander eða öðrum ferskum jurtum.

Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert