Nú ættu einhverjir að taka gleði sína því tilkynnti hefur verið um nýjasta samstarfið vestahnafs en það eru engir aðrir en Coca-Cola og Jack Daniels. Jack og kók eru mikill uppáhaldsdrykkur margra og því mun þetta spara þeim ómakið svo um munar.
Er drykkurinn liður í þróun sem er að eiga sér vestanhafs þar sem allir sem vettlingi geta valdið eru komnir í einhversskonar samstörf.
Þetta var því skrifað í skýin en hvort drykkurinn rati hingað til lands verður að teljast ólíklegt – að minnsta kosti í bili.