Verðlauna Tomahawk steikur komnar til landsins

mbl.is/Colourbox

Þau gleðitíðindi berast að nú sé hægt að fá dýrindis Tomahawk steikur frá John Stone í öllum verslunum Hagkaup.

Nautakjötið frá John Stone er marg verðlaunað og hefur meðal annars hlotið gullverðlaun í World Steak Challenge árin 2017, 2018 og 2019.

Fjöldi stjörnuprýddra veitinghúsa og hótela víða um heim bjóða að staðaldri upp á nautakjöt frá John Stone þar sem aldrei þarf að draga gæði eða rekjanleika vörunar í efa.

Nautakjötið frá John Stone er þurr meyrnað (dry aged) í um það bil 30 daga. Allir vöðvar eru sérvaldir úr fitusprengdum írskum nautgripum sem eingöngu hafa verið fóðraðir á grasi og úr lausagöngu.

Tomahawk steikurnar eru almennt 900 g - 1,3 kg. að þyngd og þykja algjört sælgæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert