Ikea framhliðarnar sem fá hjartað til að slá örar

Hølte, er framleiðandi sem býður upp á lausnir á Ikea …
Hølte, er framleiðandi sem býður upp á lausnir á Ikea innréttingar. Mbl.is/Nicholas Worley

Við elskum að sjá ný fyrirtæki sem bjóða upp á framhliðarlausnar á Ikea innréttingar, en þetta hér er algjörlega geggjað.

Hølte, er staðsett á Broadway Market í austurhluta London – en að fyrirtækinu standa stofnendurnir Tom og Fi Ginnett, sem hafa á einstakan hátt sameinað djarfa liti í bland við geomatrísk form. Hér eru smáatriðin upp á tíu! Hølte er eitt af nokkrum fyrirtækjum sem bjóða upp á sérsniðar lausnir á Ikea innréttingar, en til að mynda Reform frá Danmörku og Superfront frá Svíþjóð hafa verið sterkir á þeim velli undanfarin ár.

Handunnar skápaframhliðar, handföng og borðplötur eru á meðal þess sem Hølte býður upp á í stúdíóinu sínu, sem er einstaklega fallegt. Hér er hægt að mæla sér mót við hönnuðina í opnu, afslöppuðu rými og fara vel yfir hlutina varðandi næstu skref í átt að nýju eldhúsi – án þess að finnast að maður sé staddur í sýningarsal. Stúdíóið er í raun fögnuður fyrir allt sem Hølte stendur fyrir – fallegur efniviður, litir og handverk. Það má skoða fyrirtækið nánar HÉR.

Mbl.is/Nicholas Worley
Mbl.is/Nicholas Worley
Mbl.is/Nicholas Worley
Mbl.is/Nicholas Worley
Mbl.is/Nicholas Worley
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert