Einn lekkerasti hótelbarinn í Kaupmannahöfn

Huggulegt að njóta vína og annara veiga undir berum himni.
Huggulegt að njóta vína og annara veiga undir berum himni. mbl.is/Bar á Vin

Eitt skemmtilegasta hótel Kaupmannahafnar, þar sem iðandi mannlíf og gleði er daglegt brauð - var að opna vínbar. 

Hótelið heitir Coco Hotel og er fjögurra stjörnu butique hótel í Parísarstíl með Kaupmannahafnarbrag. Hótelið er þekkt á meðal Íslendinga sem reka gjarnan inn nefið í leit að góðri tónlist, umhverfi og drykkjum og það ekki að ástæðulausu, enda erum við afar ratvís á góða staði sem bjóða upp á mat og drykk. Á hótelinu var að opna nýr vínbar er kallast því einfalda nafni Bar á Vin - en þar má finna yfir 150 vín á lista og eins glasalista með yfir 30 spennandi víntegundum. 

Hér getur þú notið drykkjanna undir berum himni, eða setið inni á fallega barnum þeirra. Eins má gæða sér á smáréttum, þá frönskum ostum, ítölskum fingramat, ostrum, tartar ofl. Og þess má einnig geta að hótelið hlaut þann heiður að vera útnefnt af Travel + Leisure, sem besta hótel Kaupmannahafnar. 

mbl.is/Bar á Vin
mbl.is/Bar á Vin
mbl.is/Bar á Vin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert