Kaffihúsið sem okkur dreymir um að opni hér á landi

Pawsite Café er nýtt kaffihús fyrir hunda og eigendur þeirra.
Pawsite Café er nýtt kaffihús fyrir hunda og eigendur þeirra. mbl.is/Pawsite Café

Það hljómar vel að fara með besta vini sínum á kaffihús, og það er hægt á nýju kaffihúsi í London. 

Pawsite Café er staðsett í Notting Hill og býður gestum upp á mat, drykki og afþreyingu - og þá fyrir hunda og eigendur þeirra. Hér er má finna leikstöðvar sem örva káta hunda og afslappandi rými fyrir þá sem vilja slökun. Umhverfið er í raun hannað til að örva oxytósínið - eða hormónið sem losnar um í líkamanum er fólk umgengst hunda. Innréttingarnar á staðnum eru hannaðar með Feng Shui í huga, allt til að efla góðar tilfinningar um ró og hamingju. Hér eru einnig viðburðir á dagskrá eins og hvolpajóga og pallborðsumræður. 

Fyrir utan bragðgóðan mat og drykk, þá er einnig valkostur í fæði fyrir hunda. Og þó að þú eigir ekki hund sjálf/ur - þá ertu svo sannarlega velkominn til að njóta staðarins eins og hver annar gestur. 

mbl.is/Pawsite Café
mbl.is/Pawsite Café
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert