Iittala kynnir afmælisútgáfu

Nýjar vörur í tilefni að afmælisári Alvar Aalto.
Nýjar vörur í tilefni að afmælisári Alvar Aalto. mbl.is/Alvar Aalto

Þau eru eflaust ófá heimilin þar sem ekki má finna í það minnsta eina vöru frá Iittala. Og hörðustu aðdáendur mega ekki láta þessar fréttir framhjá sér fara. 

Í ár fagnar Iittala 125 ára afmælisári finnska hönnuðarins Alvar Aalto, sem á ótal vörur í vörulínum Iittala. Til að fagna árinu með sóma, hefur fyrirtækið sent frá sér þrjár nýjar vörur - eða tvo nýja blómavasa og eina skál sem hefur áður verið gefin út en mætir hér í hærri útgáfu - tilvalin fyrir snakk, ídýfu eða skartið ef því er að skipta. Bæði vasarnir og skálin verða fáanleg í mörgum litum sem allir eiga rætur í upprunalegu vörulínu Alvar Aalto frá árinu 1936. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert