Heilsurétturinn sem tryllir bragðlaukana

Bygg salat með edamame baunum.
Bygg salat með edamame baunum. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Við höldum áfram að bæta við okkur uppskriftum að bragðgóðum salötum. Hér bjóðum við upp á byggsalat með edamamebaunum, avókadó, pistasíum og ljúffengri dressingu. Fullkomið til að taka með í vinnuna og njóta í hádeginu, að sögn Hildar Rutar sem á heiðurinn af uppskriftinni.

Byggsalat með ljúffengri dressingu (fyrir einn)

  • 2 dl eldað bygg
  • 2 dl smátt skorið salat
  • 1 dl frosnar edamamebaunir
  • Krydd: cayennepipar, hvítlauksduft, salt og pipar
  • 1-2 msk. smátt skorinn vorlaukur
  • 1 dl gúrka, smátt skorin
  • 1/2 dl tómatar, smátt skornir
  • 1/2 avókadó, smátt skorið
  • 1 dl parmesanostur
  • Toppa með pistasíum og spírum

Dressing:

  • 1 msk. safi úr sítrónu
  • 1 msk. appelsínusafi (má sleppa og setja 1 msk safa úr sítrónu í staðinn)
  • 2 msk. ólífuolía
  • 1/4 tsk. salt
  • 1/4 tsk. pipar
  • 1/4 tsk. hvítlauksduft
  • 1/4 tsk. laukduft

Aðferð:

  1. Sjóðið bygg eftir leiðbeiningum á pakkningu (mæli með að gera mikið í einu og nota í fleiri rétti).
  2. Steikið edamamebaunirnar upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk.
  3. Skerið smátt salat, tómata, gúrku, vorlauk og avókadó.
  4. Blandið öllu saman í dressinguna.
  5. Blandið öllum hráefnunum saman og njótið.
mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert