Svona getur þú notað epli

Epli eru holl og góða og nýtast okkur á marga …
Epli eru holl og góða og nýtast okkur á marga vegu. mbl.is/Huizeng Hu_Getty Images

Epli eru ekki bara góð til að grípa og narta í á ferðinni - því epli geta komið víðar til sögu ef við hugsum aðeins lengra.

Bakstur
Ef þú hefur ekki bakað brauð með eplum, þá ertu að missa af miklu. Epli bæta nefnilega mikilli sætu og svampaðri áferð við brauðið og þá er frábært að nota epli sem eru komin á tíma. Brauð með eplum og heslihnetum er einstaklega bragðgott og við mælum heilshugar með að prófa sig áfram með slíkt. 

Salat
Salat fær allt aðra áferð þegar við bætum epli sama við það. Skerðu eplið í teninga eða sneiðar og bættu við góðum fetaosti eða öðru sem freistar. 

Heitir réttir
Epli passa sérstaklega vel með soðnum réttum þar sem bragðið síast úr eplinu og í matinn, t.d. í súpur eða pottrétti með svínakjöti eða kjúklingi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert