Morgunmaturinn sem bragðast eins og sælgæti

Ljósmynd/Linda Ben
Hér eru það prótín og kollagen sem leika lykilhlutverk en grauturinn er eiginlega meira eins og eftirréttur á bragðið þar sem hann er svakalega bragðgóður. Það er Linda Ben sem á heiðurinn af þessari snilld eins og henni einni er lagið.

Prótínríkur chiagrautur með berjum

  • 1 1/2 msk. chiafræ
  • 1 msk. hafrar
  • 10 möndlur
  • 1 dl vatn
  • 2 skeiðar Feel Iceland-kollagen
  • 1/8 tsk. vanilluduft (má sleppa)
  • 2 msk. grískt jógúrt
  • 1/2 banani
  • ber (fersk eða frosin)
  • 1/2 msk. kakónibbur
  • kanill
  • kókosflögur (má sleppa)

Aðferð:

  1. Setjið chiafræ og hafra í skál.
  2. Setjið möndlur og vatn í blandara og blandið þar til möndlumjólk hefur myndast (það er í góðu lagi að allar möndlurnar hakkist ekki alveg og smá bitar séu í mjólkinni). Hellið möndlumjólkinni í skál, hrærið og leyfið grautnum að taka sig í um það bil 15 mínútur eða þar til hann er orðinn þykkur.
  3. Bætið kollageni út í og hrærið.
  4. Bætið vanilludufti út í og hrærið.
  5. Bætið grískri jógúrt út á skálina ásamt bananasneiðum, berjum, kakónibbum og örlitlu af kanil.
Ljósmynd/Linda Ben
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert