Systkini opna Kópavogskróníku

Nýr veitingastaður opnar á næstu vikum í Gerðarsafni.
Nýr veitingastaður opnar á næstu vikum í Gerðarsafni.

Veitingastaðurinn Króníkan verður opnaður í Gerðarsafni í Kópavogi innan tíðar. Á veitingastaðnum verður meðal annars boðið upp á smurbrauð, kaffiveitingar og góða drykki. Stefnt er að því að opna nýja staðinn í júní. 

Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir, systkini úr vesturbæ Kópavogs, hafa tekið reksturinn að sér. Þau undirrituðu samning í dag á afmælisdegi Kópavogsbæjar.

„Við erum mjög spennt fyrir að taka við rekstri í hinum eina sanna miðbæ Kópavogs, þetta eru okkar slóðir og við hlökkum mikið til taka á móti gestum,“ segja Bragi og Sigrún í fréttatilkynningu. Bragi sem eigandi og rekstraraðili meðal annars Veðurs, Vínstúkunnar 10 sopa og Brút. Sigrún hefur meðal annars unnið á Bergsson mathúsi. 

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir kærkomið að fá veitingastað í Gerðarsafn.

„Króníkan verður frábær viðbót við starfsemi menningarhúsanna sem ég er sannfærð um að bæjarbúar og aðrir eiga eftir að taka opnum örmum.“

Nafnið Króníkan hefur fest sig vel við Kópavog. Rithöfundurinn Kamilla Einarsdóttir sendi frá sér skáldsöguna Kópavogskróniku árið 2018 sem gerðist einmitt í Kópavogi. 

Á myndinni eru frá vinstri: Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir …
Á myndinni eru frá vinstri: Bragi Skaftason og Sigrún Skaftadóttir frá Króníkunni, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri, Brynja Sveinsdóttir, safnstjóri Gerðarsafns og Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála hjá Kópavogsbæ.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert