„Að sjálfsögðu ætla ég mér að taka bikarinn heim“

Grétar Matthíasson keppir fyrir Íslands hönd í kokteilagerð.
Grétar Matthíasson keppir fyrir Íslands hönd í kokteilagerð.

Teitur Riddermann Schiöth, forseti Barþjónaklúbbs Íslands, og Grétar Matthíasson, Íslandsmeistari í kokteilagerð, eru mættir til Tírana í Albaníu til þess að taka þátt á Evrópumeistaramótinu í kokteilagerð. 

Íslendingar keppa í flokknum Long Drink en einnig er keppt í flokknum „Flair“ á mótinu. Grétar mun stíga á stokk í kvöld með drykkinn sinn „Mombay Mandarin“ en hann inniheldur Star of Bombay gin, Limoncello, mandarínu purée, eplasafa, Monin greip sýróp og salín salt upplausn. Þá er hann skreyttur með lime berki, appelsínu berki, sítrónu berki, stráum og kokteilpinna, en þetta er allt saman skorið og sett saman í fallega skreytingu.  

„Ég er vel stemmdur fyrir kvöldinu og hlakka mikið til að stíga á svið,“ segir Grétar. „Að sjálfsögðu ætla ég mér að taka bikarinn heim! Ég setti mér markmið í byrjun árs að ná þremur titlum þetta árið, Íslandsmeistaratitilinn sem er kominn í höfn, Evrópumeistaratitilinn í kvöld og svo Heimsmeistarann seinna í ár.“ Heimsmeistaramótið í kokteilagerð verður haldið í Róm í nóvember á þessu ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert