Appelsínukryddlegið lamba t-bone með ljúffengu meðlæti

Þessar eru girnilegar á grillið, appelsínukryddlegnar lamba t-bone bornar með …
Þessar eru girnilegar á grillið, appelsínukryddlegnar lamba t-bone bornar með ljúffengu meðlæti og myntu-pestó. Ljósmynd/Linda Ben

Nú er komin helgi og þá er lag að grilla og búa til sumarstemningu. Eitt það nýjasta á markaðinum er appelsínukryddlegið lamba t-bone frá SS og er eitthvað sem allir grillkjötsunnendur þurfa að prófa. Appelsínukryddlögurinn er einstaklega ljúffengur, hann gefur milt og ljúft sítrusbragð og er án allra rotvarnarefna. Kjötið sjálft er mjög gott, meyrt og bragðmikið.

Uppskriftarhöfundurinn Linda Ben, sem heldur úti uppskriftasíðunni Linda Ben, prófaði þessar ljúffengu lamba t-bone steikur og var mjög ánægð með útkomuna. Steikurnar bar hún fram með mintu-pestó sem hún sagði að hafi kom ótrúlega skemmtilega út og passaði vel með appelsínukryddleginum. Þetta eru fersk, létt og sumarleg brögð. Með þessu var hún með ofnbakað smælki sem er mjög vinsælt þessa dagana, ofnbakaðar gulrætur og grillaðan maís. Hver og einn getur að sjálfsögðu ráðið meðlæti eftir smekk og löngun og borið fram þessum dýrðlegu lambasteikum. Jafnframt er aðlaðandi að bera lambasteikurnar fram með létt grilluðum appelsínusneiðum og skreyta með kryddjurtum.

Hægt er að velja meðlæti eftir smekk hvers og eins. …
Hægt er að velja meðlæti eftir smekk hvers og eins. Hér er boðið upp á ofnbakað smælki og gulrætur ásamt grilluðum maís og myntu-pestó. Ljósmynd/Linda Ben

Appelsínukryddlegnar lambasteikur með ljúffengu meðlæti

Appelsínu lamba t-bone steikur

  • 1,2 kg Appelsínukryddlegið lamba t-bone frá SS

Aðferð:

  1. Grillið samkvæmt leiðbeiningum á pakka.

Ofnbakað stökkt smælki

  • 600 g smælki
  • 2-3 msk. ólífuolía
  • Salt eftir smekk

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C, undir og yfir hita.
  2. Skerið smælkið þannig að hver kartafla fer í 4 hluta og raðið á smjörpappírsklædda ofnplötu. Dreifið vel úr þeim og passið að engar séu ennþá klesstar saman.
  3. Dreifið ólífu olíu yfir allt saman og saltið.
  4. Bakið inn í ofni í u.þ.b. 45 mínútur, gott að hræra í kartöflunum inn á milli svo þær verði krispí á öllum hliðum.

Ofnbakaðar gulrætur

  • 300 g gulrætur
  • 2 msk. olífu olía
  • Salt eftir smekk
  • U.þ.b. 1 – 1 ½  msk. balsamik vinegar 

Aðferð:

  1. Skolið gulræturnar og flysjið ef ykkur finnst þurfa. Ef gulræturnar eru mjög þykkar getur verið gott að skera þær endilangt. Raðið í eldfast mót.
  2. Hellið ólífu olíu yfir og saltið. Hellið einnig balsamik ediki yfir og bakið inn í ofni í u.þ.b. 30-40 mín (fer eftir hversu þykkar þær eru)

Grillaður maís

  • 2 ferskir maísstönglar
  • 1 msk. smjör eða eftir smekk
  • Salt

Aðferð:

  1. Setjið maísinn á grillið í “blöðunum” sem hann er náttúrulega í. Snúið honum reglulega, það er í lagi þó svo að eitthvað af blöðunum brenni. Grillið í u.þ.b. 20-30 mínútur.
  2. Hreinsið “blöðin” og “hárin” af maísnum, skerið í helming og setjið vel af smjöri yfir, saltið örlítið.

Mintu-pestó

  • 30 g fersk minta
  • 15 g fersk steinselja
  • 1/2  dl ristaðar kasjúhnetur
  • 1 msk. sítrónusafi
  • Sítrónubörkur af ¼ sítrónu
  • 1 hvítlauksgeiri
  • 2 msk. rifinn parmesan
  • u.þ.b. 1 dl bragðgóð extra virgin ólífu olía

Aðferð:

  1. Setjið öll innihaldsefnin í blandara og maukið á lágum styrk, blandan á að vera nokkuð gróf maukuð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert