Prótein kökudeigið sem Helga Magga elskar

Helga Magga næringarþjálfi elskar að borða kökudeig og sýnir listir …
Helga Magga næringarþjálfi elskar að borða kökudeig og sýnir listir sínar við hér. Samsett mynd

Þetta er einföld og sniðug uppskrift úr smiðju Helgu Möggu næringarþjálfara þegar þig langar í eitthvað sætt og gott. Algjörlega fullkomið kökudeig sem hægt er að borða, því við vitum nú öll að kökudeigið úr skálinni er það besta við bakstur. Kökudeigið er orkuríkt, mjög sniðugt í nesti eða eftirrétt. Þú velur bara réttu stundina. Helga Magga elskar að borða þetta kökudeig og nýtur hvers bita. Sjáið hana á Tik Tok hér fyrir neðan.

Prótein kökudeig

Fyrir 1-2

  • 1 msk. hnetusmjör /10 g
  • 1 msk. hunang /15 g
  • 70 g grísk jógúrt
  • 25 g próteinduft með vanillubragði
  • 15 g súkkulaðibitar 

Aðferð:

  1. Þið byrjið á því að hræra saman hnetusmjöri og hunangi, bætið síðan gríska jógúrtinu út í skálina og hrærið vel.
  2. Blandið næst er próteinduftinu saman við blandað saman við og að lokum súkkulaðibitunum.
  3. Það er hægt að borða kökudeigið strax en það má líka kæla það aðeins og borða það svo.
@helgamagga.is

Prótein kökudeig er svo gott ✨ uppskriftin er komin inn á www.helgamagga.is

♬ What You Need (feat. Charlotte Day Wilson) - KAYTRANADA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert