Luis Díaz, kantmaður Liverpool, fór afar illa með Kyle Walker, bakvörð Manchester City, þegar liðin áttust við í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Anfield í Liverpool fyrr í mánuðinum.
Leiknum lauk með jafntefli, 1:1, í stórskemmtilegri viðureign.
Mikið hefur verið um glæsileg tilþrif á tímabilinu enda fjöldinn allur af leiknum leikmönnum sem spila í ensku úrvalsdeildinni.
Bestu tilþrif tímabilsins til þessa má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.