Ástralski ljósmyndarinn Sorelle Amore birti nýverið myndaþátt sem tekinn var á Íslandi. Á myndunum má sjá Amore sjálfa setja sig í hinar ýmsu stellingar í íslenska snjónum.
Það sem er einna merkilegast við myndirnar eru að Amore er klædd í bikiní á þeim og er að sinna hinum ýmsu verkefnum. Á einni myndinni er hún til dæmis að ryksuga og á annarri er hún að spila golf.
„Einn daginn þegar það hafði snjóað svo mikið að ég komst ekki leiða minna fékk ég þessa hugmynd. Ég greip bikíníið mitt, handklæði og sólgleraugu,“ skrifaði Amore á heimasíðuna sína. Hún starfar nú hér á landi sem leiðsögumaður.
Myndaþáttinn má skoða í heild sinni á vefsíðu Amore.