Leiðist þér líf þitt? Hvað er til ráða?

Raphaëlle Giordano er að skrifa sína fyrstu skáldsögu, en hefur …
Raphaëlle Giordano er að skrifa sína fyrstu skáldsögu, en hefur áður skrifað bækur um sjálfsrækt. mbl.is/Pinterest

Um þessar mundir kemur út ný sjálfshjálparbók í dulargervi fyrir alla þá sem finnst lífið ekki eins skemmtilegt og það ætti að vera. Þitt annað líf hefst eftir að þú uppgötvar að þú átt bara eitt líf.

Camille býr í París með manni sínum og syni, fertugsafmælið nálgast og henni leiðist. Allt hjakkar í sama fari ár eftir ár. Daginn sem springur á bílnum hennar á fáförnum vegi í grenjandi rigningu er hún að því komin að bugast. En þá birtist Claude, heillandi og uppátækjasamur, kynnir sig sem rútínufræðing og býðst til að hjálpa henni að umbylta lífi sínu. Eftir nokkurt hik ákveður Camille að grípa þetta óvænta tækifæri – en hvert skyldi það leiða hana? Alla leið til stjarnanna?

Þitt annað líf hefst þegar þú uppgötvar að þú átt bara eitt er sannkölluð sjálfshjálparbók fyrir alla sem finnst lífið ekki eins skemmtilegt og það ætti að vera – og vilja finna leið til að láta draumana rætast. Gamansöm og óvenjuleg saga sem vísar veginn til lífsgleðinnar!

Raphaëlle Giordano hefur áður skrifað bækur um sjálfsrækt en þetta er fyrsta skáldsaga hennar.

Ólöf Pétursdóttir þýddi. Vaka Helgarfell gefur út bókina.

Þitt annað líf er fáanleg á Íslandi í dag.
Þitt annað líf er fáanleg á Íslandi í dag. mbl.is/Vaka Helgarfell.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál