Elska mömmu- og pabbaæfingar

Justin Timberlake og Jessica Biel finnst gott að svitna saman.
Justin Timberlake og Jessica Biel finnst gott að svitna saman. AFP

Jesscia Biel og Justin Timberlake eru hjón í flottu formi. Leikkonan greindi frá því í viðtali við Self að hún elskaði að æfa með eiginmanni sínum þrátt fyrir að það gæfist ekki alltaf tími til þess. 

„Ég reyndar elska mömmu- og pabba æfingar, þær eru bestar,“ sagði leikkonan. „Það er svo gott að vera með félaga þegar þú ert að æfa. Það er eitthvað sem eiginmaður minn og ég elskum að gera.“

Það þykir gott ráð að æfa með félaga en einnig er mælt með því að pör hreyfi sig saman svo þau Biel og Timberlake slá tvær flugur í einu höggi þegar þau æfa saman. Þegar hjónin æfa saman verður oft lotuþjálfun fyrir valinu eða önnur hreyfing sem reynir á þolið. 

Hinn fullkomni dagur Biel myndi hins vegar byrja á jóga en hún hefur mikinn áhuga á jóga. Dagarnir eru þó ekki alltaf þannig hjá Biel og segir hún vera þekkt fyrir að mæta í ræktina klukkan tíu eða ellefu á kvöldin. Hún er með rækt heima hjá sér en hún nýtir líka svefnherbergið á kvöldin til þess að iðka jóga.

Biel segir að 20 mínútna löng æfing sé betri en engin æfing. „Ef þú getur troðið inn tíma með maka þínum á sama tíma, enn betra.“

Justin Timberlake og Justin Timberlake.
Justin Timberlake og Justin Timberlake. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál