Leyndarmál Elizabeth Hurley

Elizabeth Hurley er dugleg að sýna kroppinn á samfélagsmiðlum.
Elizabeth Hurley er dugleg að sýna kroppinn á samfélagsmiðlum. skjáskot/Instagram

Leikkonan Elizabeth Hurley er 53 ára en virðist hafa lítið breyst síðustu tvo áratugi. Hurley upplýsti í viðtali við Women's Health hvert leyndarmálið væri á bak við unglegt útlit sitt en hreyfing, næringarríkur matur og hlutir sem fá hana til þess að slaka á eru meðal þess. 

Hurley byrjar daginn á því að drekka tvo bolla af heitu vatni. Í morgunmat fær hún sér svo  grískt jógúrt með banönum og smá hunangi. Í hádegismat finnst henni gott að fá sér grænmetissúpu. Hurley borðar venjulega kvöldmat á skrifstofunni sinni og verður kjúklingur og mjög, mjög, mjög mikið af grænmeti oft fyrir valinu. 

Hurley vill ekki viðurkenna að æfa á öfgafullan hátt. Ef hún er ekki í tökum byrjar hún daginn klukkan hálfátta og gerir hnébeygjur á meðan hún tannburstar sig. Hún segist vera með bakvandamál og hnébeygjurnar hjálpi til við það. Hún gerir hnébeygjur eins lengi og það tekur hana að tannbursta sig. Hún endurtekur leikinn síðdegis. Hún fer í hálftímalangan göngutúr með hundana sína á morgnana. Hún viðurkennir þó að fara stundum í jóga og pilates-tíma. 

Þetta hljómar ekki flókið og ættu flestir að geta farið eftir ráðum Elizabeth Hurley. 

Elizabeth Hurley.
Elizabeth Hurley. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál