Þrjú mikilvæg efni fyrir topp andlega heilsu

Inga Kristjánsdóttir næringaþerapisti.
Inga Kristjánsdóttir næringaþerapisti. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Við erum að sigla inn í veturinn og rosalega mikilvægt að huga að heilsunni, ekki bara þeirri líkamlegu heldur ekki síður hinni andlegu,“ segir Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti í sínum nýjasta pistli á Smartlandi:

Ég áttaði mig á því að ég þyrfti kannski að huga að því sjálf um daginn, þegar ég, í fyrsta skipti á ævinni, gaf manneskju puttann í umferðinni. Karlhálfvitinn auðvitað svínaði á mér og það var pínu gaman að láta hann hafa það óþvegið, en það er nú slæmt karma.

Held ég endurtaki það ekkert.

Það eru ákveðin efni, vítamín og steinefni, sem eru sjúklega mikilvæg fyrir geðslagið og ef uppá vantar í kroppinn þá getur það valdið veseni. Mig langar að deila hér með ykkur litlum lista yfir bætiefni sem get hjálpað gegn streitu, þyngslum og kvíða.

Þá eru lykilorðin „geta hjálpað“, því stundum þarf auðvitað mun meira til að vinna gegn slíku, læknishjálp og/eða sálfræðimeðferð.

Þetta er líka engan veginn tæmandi listi eða upptalning, svo ótal margt sem getur hjálpað, en það nennir nú enginn að lesa rosa langan pistil.

Það eru fjölda margar rannsóknir sem sýna fram á að þessu eftirtöldu efni, geta haft jákvæð áhrif í svona aðstæðum.

Hér koma mínar hugmyndir:

B-vítamín

B-vítamín – B vítamínin eru auðvitað ekki bara eitt efni, heldur mörg og best er að taka inn blöndu B vítamína. Þau fíla félagskap hvers annars og nýtast best í hóp.

Skortur á ákveðnum B vítamínum er nokkuð algengur og getur dregið úr mannskapnum allan mátt.

B 12 skortur er gott dæmi um það. Hann lýsir sér í mikilli þreytu, mæði, minnistruflunum, svima og þunglyndi svo eitthvað sé nefnt. B 12 upptaka er háð ákveðnum þætti í meltingarfærum (intrinsic factor) og það er mjög algengt að upptakan sé slæm. Það getur hreinlega verið arfgengt. Einnig hafa magalyf (svokölluð PPI lyf) áhrif og geta dregið stórkostlega úr upptöku.

Það er margt sem getur valdið því að okkur vantar hin ýmsu B vítamín. Léleg upptaka eins og ég nefndi hér að ofan, sum lyf valda skorti, einhæft mataræði, áfengisdrykkja og ýmislegt fleira.

B vítamínin eru vatnsleysanleg, sem þýðir að það er engin hætta á að þau safnist upp í líkamanum og valdi eitrun eða slíku. Þannig að ykkur er óhætt að taka þau inn að staðaldri í stórum nokkuð skömmtum. Það að þau eru vatnsleysanleg þýðir líka að þá getur líkaminn ekki geymt mikinn forða og því nauðsyn að fylla á reglulega.

B vítamínin eru fjölmörg, en best er að taka þau inn öll saman, eins og áður sagði. Hins vegar má svo bæta við skammti einhverjum ákveðnum B vítamínum, ef ástæða er til. Til dæmis B12 vítamíni.

Þið getir fengið mælt í blóðprufu hjá lækni hve vel þið standið í B12 og um að gera að fá það mælt ef þið kannist við einhver einkenna hér að ofan eða grunar að þið séuð lág í B12.

D-vítamín

D–vítamín. Við vitum að við þurfum að taka það inn yfir vetrartímann, þar sem við fáum ekki nægilegt magn úr sólinni stærsta tíma ársins. Jafnvel er talað um að við náum ekki að vinna D-vítamín úr sólinni nema í um það bil sex vikur á ári. Það er nú bara fjanda kornið ekki neitt.

Og nú erum við ekki beint að fara mikið erlendis í sólina þessi misserin.

Það er líka mjög erfitt að fá nægilegt D-vítamín úr fæði, nánast ómögulegt nema borða þorskalifur reglulega, persónulega nenni ég því ekki!

En hvað kemur D-vítamín þyngslum, kvíða og stressi við?

Jú, heil mikið bara. D-vítamín er magnað og virkar eiginlega líkt og hormón í líkamanum.

Komið hefur í ljós, þegar fólk með þunglyndi og kvíða er rannsakað, að það hefur oft lág gyldi af D-vítamíni og rannsóknir hafa sýnt að það að kippa því í lag hefur stórkostleg áhrif.

Voila!

Það er þá bara „winwin“ að taka inn D-vítamín núna, því það hefur ekki eingöngu góð áhrif á andlega líðan heldur er það algjör nauðsyn öflugu ónæmiskerfi í baráttunni við veirur og annan skít.

Ég þarf ekki að segja meira held ég.

Allir að ná sér í D-vítamín.

Magnesíum

Auðvitað magnesíum!

Flestir hafa líklega heyrt um mikilvægi þess fyrir líkama og sál, en skoðum það aðeins betur.

Magnesíum er þátttakandi í yfir 300 efnahvörfum í líkamanum. Það þýðir að ef að líkaminn hefur ekki nóg magnesíum þá eru öll þessi efnahvörf þyngri í vöfum og jafnvel ganga ekki upp.

Það er talið að allt að 75% fólks nái ekki að fá nóg magnesíum úr fæðu, það er dálítið stór hópur.

Magnesíumskortur getur lýst sér á ýmsa lund og með furðulegustu einkennum.

Hér eru þau líkamlegu:

Sinadrættir, fótapirringur, krampar, vöðvakippir og þreyta, óreglulegur hjartsláttur, hár blóðþrýstingur og jafnvel flog.

Hér eru svo þau andlegu:

Þunglyndi, kvíði og aukin streitueinkenni og minna þol gegn álagi.

Þar hafið þið það!

Við nennum nú ekkert að láta einhvern magnesíumskort skemma fyrir okkur heilsuna, og það er líka svo auðvelt að kippa þessu í liðinn með því einfaldlega að taka inn magnesíum daglega.

Ef þið hafið ekki tekið inn magnesíum áður, þá er bara eitt að varast. Ekki byrja á of stórum skammti, það er ávísun á vesen.

Magnesíum er nefnilega líka mjög losandi í ofurskömmtum. Já ég er að reyna að segja á penan hátt (veit ekki hversvegna ég er að reyna það samt) að þið fáið niðurgang af of miklu. Best að auka skammtinn hægt og rólega og svo bara halda sig í viðhaldsskammti.

Það er mjög einstaklingsbundið hvað hver og einn þarf mikið, það fer eftir aldri, ástandi, mataræði, hvort viðkomandi sé á lyfjum sem hafa áhrif á jafnvægið og einnig hvort mikil áfengisneysla sé málið.

Eins og ég sagði í upphafi, þá eru þetta einungis þrjár hugmyndir, margt annað sem skiptir miklu máli og kannski hendi ég bara í fleiri pistla með framhaldi, hver veit.

Höldum í heilsuna og gerum allt sem í okkar valdi stendur til að láta okkur líða vel í vetur!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál