Sjónvarpskonan Katie Couric er í fantaformi og vílar ekki fyrir sér að standa á haus eftir pílatestíma. Couric setti sér fyrir nýja áskorun í heimsfaraldrinum og ákvað að fara að stunda pílates heima af krafti.
Couric deildi mynd af sér á Instagram í vikunni þar sem hún stendur á haus. „Já. Þetta er ég,“ skrifaði sjónvarpskonan og bætti nokkrum myllumerkjum við, meðal annars aldri sínum.
Í viðtali sem Couric tók við Ashley Patten, pílatesþjálfarann sinn, í febrúar á þessu ári ræddi hún um pílatesvegferð sína. Couric sagði Patten meðal annars hafa hjálpað sér að uppgötva mittið á sér aftur.
Auk pílatesþjálfunarinnar hefur Couric prófað sig áfram með mataræðið í heimsfaraldrinum. Í byrjun prófaði hún ketó. Seinna skipti hún yfir í svokallað pegan-mataræði sem er blanda af vegan- og steinaldarmataræði.