Athygli er uppskera - hverju veitir þú athygli?

Guðni Gunn­ars­son, eig­andi Rope Yoga-set­urs­ins, býður les­end­um mbl.is upp á 14 daga vitræna áskor­un. Áskor­un­in snýst um að auka vellíðan og vit­ræna nálg­un á huga og sál í nokkr­um skref­um.

„Athygli er auðlind og athygli er ást. Áskorun dagsins snýst um að vakna til vitundar og veita því athygli sem skiptir þig máli. Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar,“ segir Guðni.

Vaknaðu til vitundar og veittu því sérstaka athygli hvert þú, sem einstaklingur, beinir þinni athygli. Þjálfaðu hugann í að vera í fullri vitund. Þjálfaðu þig í að vera í núinu en þjálfaðu þig líka í að vera fjarstaddur.

Taktu fyrsta skrefið í átt að vellíðan og upphafi andlegrar vegferðar þinnar með því að vakna til vitundar. Njóttu ferðalagsins með þér og reyndu að láta þér líða vel í eigin návist.

Við bjóðum þér í 14 daga ferðalag þar sem þú þróar þína velsæld út frá nokkr­um skref­um. Leyfðu þér að vera ást. Leyfðu þér að njóta ham­ingj­unn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál