Aukakílóin erfið í Hollywood

Plötufyrirtækið sagði Rexha að léttast um 10 kíló þegar hún …
Plötufyrirtækið sagði Rexha að léttast um 10 kíló þegar hún undirritaði fyrsta plötusamninginn sinn. Samsett mynd

Bandaríska söngkonan Bebe Rexha greindist nýlega með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (e. polycystic ovary syndrome/PCOS). Hormónasjúkdómurinn getur valdið ófrjómsemi, óreglulegum blæðingum, bólum og þyngdaraukningu en konur með þetta heilkenni hafa óeðlileg hormónagildi og eru einnig í frekari áhættu að greinast með sykursýki II, legbolskrabbamein og hjartavandamál. 

Rexha sem er 33 ára gömul ræddi um greininguna í nýlegu viðtali við Gayle King í SiriusXM–þættinum, Gayle King in the House, og sagði einnig frá því hvernig heilkennið hefur haft áhrif á hana. „Ég komst heldur nýlega að því að ég er með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni eins og margar aðrar konur. Og margar konur þjást af heilkenninu án þess að hafa hugmynd um það,“ sagði söngkonan. 

„Þú verður að léttast“

Óútskýrð þyngdaraukning er eitt af helstu einkennum heilkennisins og eitt af því sem Rexha hefur átt hvað erfiðast með svona í byrjun. „Ég hef verið að berjast við mat síðan ég man eftir mér. Þegar ég byrjaði í tónlistarbransanum, ung og lífleg, og undirritaði minn fyrsta plötusamning heyrði ég nánast áður en blekið þornaði: Ertu tilbúin? Þú þarft að komast í betra form. Þú þarft að missa 10 kíló,“ sagði Rexha við King.

Þyngdaraukning söngkonunnar hefur verið mikið á milli tannanna á fólki og var myllumerkið #beberexhaweight eitt það vinsælasta og umtalaðasta á samfélagsmiðlinum TikTok fyrir örfáum vikum. „Að sjá þetta er svo pirrandi,“ skrifaði Rexha á Twitter. „Ég er ekki reið yfir þessu, þetta er satt. Ég þyngdist. Það er bara leiðinlegt að þetta skuli skipta svona miklu máli.“ 

Dýrmæt lexía

Þessi miskunnarlausa þráhyggja annarra yfir stærð Rexha og skaðleg ummæli fólks á netinu hafa þó kennt söngkonunni dýrmæta lexíu. „Það er mikilvægt að hafa gott félagsnet. Ég hef verið á ótal rauðum dreglum brosandi og veifandi en liðið svo illa af því að ég var umkringd allri þessari neikvæðni. Nú vil ég bara ekki hafa þetta í kringum mig lengur.“

Söngkonan sagði þetta einnig stórt og mikilvægt skref fyrir sig þar sem hún hefur lengi átt í erfiðleikum með líkamsímynd sína og nú þegar hún er farin að læra á sjálfið og líkama sinn með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni þá vill hún ekki alla þessa óþarfa neikvæðni. „Ég hef alltaf átt í erfiðleikum með útlitið. Það hefur verið mjög erfitt.“

View this post on Instagram

A post shared by Goodful (@goodful)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál