Leikarinn og vandræðagemlingurinn Charlie Sheen hefur sett glæsihýsi sitt í Beverly Hills á sölu og vill fá einn milljarð fyrir. Sheen keypti húsið fyrir meira en áratug en síðan þá hefur mikið átt sér stað í lífi Sheen.
Variety greinir frá því að Sheen hafi ekki bara verið launahæsti sjónvarpsleikarinn á meðan hann bjó í húsinu heldur líka hafi margir skandalar átt sér stað á meðan. Leikarinn var meðal annars rekinn úr þáttunum Two and a Half Man og átti við fíkniefnavandamál að stríða.
Hús hans ber merki þess að það sé í eigu leikara og er hægt að finna sjónvarpsskjái af ýmsum stærðargráðum í húsinu. Auk notalegs bíósals er sjónvarpsskjár á barnum í garðinum svo hægt er að fylgjast með sjónvarpsþáttum og íþróttaleikjum bæði úti og inni.