Hönnunarveisla með 4,5 metra lofthæð

Ljósmynd/airbnb.com

Aukin lofthæð og stórir gluggar eru oft efst á óskalista þegar hugsað er um draumaheimilið. Í Chicago í Bandaríkjunum er að finna glæsilega 232 fm þakíbúð sem skortir hvorki lofthæð né glugga. 

Íbúðin státar af rúmlega 4,5 metra lofthæð og fjölda stórra glugga sem hleypa mikilli birtu inn. Hrá steypa á gólfi, múrsteinar á veggjum og timbur í lofti setja sterkan svip á íbúðina sem hefur einstakan sjarma. Íbúðin er staðsett í sögulegri byggingu frá árinu 1920, en hún var nýverið endurnýjuð og óhætt að segja að útkoman sé glæsileg. 

Gengið er inn í stórt og opið alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Íbúðin er búin afar smekklegum húsmunum sem setja sannarlega punktinn yfir i-ið, en einfaldleikinn er þó hafður í forgrunni svo arkitektúr íbúðarinnar njóti sín. 

Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi eru í íbúðinni sem er til útleigu á Airbnb, en þar rúmast alls 12 gestir hverju sinni. Í svefnherbergjunum eru tveggja metra háir gluggar til vesturs sem bjóða gestum upp á einstakt sólsetur á kvöldin. 

Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
Ljósmynd/airbnb.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál