Búin að prófa allar útgáfur af jólunum

Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari og hjúkrunarfræðingur er komin í hátíðaskap.
Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari og hjúkrunarfræðingur er komin í hátíðaskap. mbl.is/Kristinn Magnússon

Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur, matarbloggari og fjögurra barna móðir var að senda frá sér sína aðra matreiðslubók, Gulur, rauður, grænn og salt, sem heitir í höfuðið á matarbloggi hennar sem fagnar fimm ára afmæli í ár. Berglind er jólabarn en hún þolir þó ekki jólastress og vill frekar njóta en að setja allt á hliðina fyrir lekkerheit sem engu skila. 

„Ég myndi segja að ég hafi alltaf verið mikið jólabarn og sérstaklega hrifin af aðdraganda jólanna sem ég reyni að lengja eftir bestu getu. Svo er ég mikill nautnaseggur og finnst gott að hafa enn eina ástæðuna tl að gera vel við mig í mat, drykk, góðri tónlist og félagsskap. Svona „hygge“ tímabil eins og það gerist best,“ segir Berglind.
Berglind var að gefa út nýja matreiðslubók sem heitir einfaldlega …
Berglind var að gefa út nýja matreiðslubók sem heitir einfaldlega Gulur, græntt & salt.

Jólin og aðventan eru í miklu uppáhaldi hjá Berglindi. Hún segir að sér finnist best að slaka á um jólin og spila.

„Og borða góðan mat. Við munum flytja á nýtt og dásamlegt heimili með góða sál fyrir þessi jól og þau verða því einstaklega ljúf,“ segir hún.

Aðspurð hvað komi henni í jólaskap nefnir hún rölt um miðbæ Reykjavíkur.

„Mér finnst gaman að kíkja í bókabúðir og á kaffihús. Gæða mér á dönsku smurbrauði og öli. Svo eru spilakvöld með vinum í uppáhaldi og líka smákökubakstur með börnunum mínum. Krydd eins og kanill og negull koma mér líka í jólaskap og líka mandarínur og falleg rauð epli. Ég kann líka að meta lágstemmda tónleika og svo mætti lengi telja,“ segir hún.

Berlind er mikil „gourmet“-manneskja og því leikur okkur forvitni á því hvað hún borði á jólunum.

„Það er nú minna og minna heilagt eftir því sem árin líða. Núna er mesta áherslan lögð á að hafa það notalegt og elda mat sem gerir manni það kleift. Við höldum þó í möndlugrautarhefðina með fjölskyldunni og alltaf jafn spennandi að sjá hver vinnur möndlugjöfina það árið,“ segir hún.

Hvenær byrjar þú að kaupa jólagjafir?

„Ég er búin að prufa allar útgáfur af þessu eins og til dæmis að byrja að kaupa jólagjafir að hausti. Það reyndist mjög illa því ég var alltaf að bæta í gjöfina og endaði því með dýrustu jól sem ég hef upplifað. Best að gera þetta bara þegar jólin fara að nálgast í lok nóvember eða hreinlega bara í desember.“

Sendir þú jólakort?

„Já, oftast geri ég það, því ég elska sjálf að fá jólakort sem ég opna á jóladag. En það verður að viðurkennast að jólakortunum fer fækkandi með árunum enda rafrænar kveðjur orðnar vinsælli. Fátt er samt notalegra en falleg orð á jólakorti.“

Berglind þráir að eignast þetta stell sem fæst í Snúrunni.
Berglind þráir að eignast þetta stell sem fæst í Snúrunni.

Hvað langar þig í í jólagjöf?

„Já, þú segir nokkuð. Þetta hafði ég reyndar ekki hugsað út í. En jú, þar sem ég er að flytja væri ég til í fallega hluti fyrir heimilið eins og nýtt matarstell t.d. frá BITZ úr Snúrunni, Timeless kampavínsglös frá Rekstrarvörum, JURA kaffivél sem útbýr góðan sterkan kaffibolla fyrir mig, mjúkan baðslopp, svo fyrst ég er byrjuð að óska mér langar mig í fallega Amber-ljósið með gula glerinu úr Epal – sem mér þykir ólýsanlega fallegt og myndi sóma sér svo vel fyrir ofan gamalt borðstofuborð sem mér áskotnaðist. En svo ég tóni þetta aðeins niður þá er góð bók alltaf gjöf sem hittir í mark hjá mér. Mig langar í nýju bókina hans Jóns Kalmans, Sögu Ástu, og eflaust einhverjar fleiri. Ég er alltaf sátt ef ég fæ góða bók.“

Þegar talið berst að jólastressi segist Berglind reyna að halda því í lágmarki því hún sé með bráðaofnæmi fyrir því.

„Ég segi það nú samt ekki, maður dettur einstaka sinnum í það en ég hef viljann að vopni og reyni að einfalda lífið. Ef eitthvað er ekki tilbúið þegar bjöllurnar hringja inn jólin þá fær það bara að vera þannig.“

Matarbloggið hennar Berglindar, Gulur, rauður, grænn og salt, fagnaði fimm ára afmæli sínu í ár. Berglindi fannst ekki annað koma til greina en að gefa út aðra matreiðslubók á þessum tímamótum.

„Ég var búin að vera að leggja drög að næstu bók í dágóðan tíma og fannst við hæfi að þessi nýja bók kæmi út í ár þegar Gulur, rauður, grænn &salt fagnar fimm ára afmæli sínu. Bókin er gefin út af Benedikt bókaútgáfu og heitir einfaldlega Gulur, rauður, grænn & salt enda bara of fallegt nafn til að nota það ekki alltaf. Bókin sem er í anda vefsíðunnar inniheldur nýjar, einfaldar uppskriftir að töfrandi og litríkum réttum frá öllum heimshornum. Bragðgóðar uppskriftir, fallegar og litríkar myndir teknar af ítalska ljósmyndaranum Silvio Palladino ásamt fallegri hönnun og uppsetningu Benedikts bókaútgáfu gera þessa bók að stolti mínu og yndi,“ segir hún.

Þegar ég spyr Berglindi hvort matreiðsla hennar hafi eitthvað breyst á þessum fimm árum vill hún alls ekki meina það.

„Matreiðsla mín hefur haldist að mestu óbreytt enda hef ég ávallt lagt áherslu á fjölbreytni í mat og elda mest frá grunni. Ég notast enn við fá hráefni að mestu þó svo að það séu undantekningar á því enda er það góð hugleiðsla fyrir mig að undirbúa mat, með rauðvínsglas, við góða tónlist og þá nýt ég mín tímunum saman. En auðvitað er ég komin með mikla þekkingu á þessu sviði og góða tilfinningu fyrir því hvað lesendur vefsíðunnar vilja.“

Finnst þér fólk hugsa öðruvísi út í mat núna en til dæmis þegar þú byrjaðir með matarbloggið þitt?

„Ég hef að minnsta kosti fengið þakkir frá fólki sem hélt því fram að það kynni engan veginn að elda en svo hélt það matarboð með uppskriftum af síðunni sem því þótti viðráðanlegrar og sló í gegn. Það er nú einfaldlega þannig að ef áhuginn er fyrir hendi, geta allir geta orðið meistarar í eldhúsinu,“ segir hún kát í bragði.

Hvaða matur færir þér vellíðan?

„Góður fiskréttur, kjúklingasalat, súpa ... nú og rauðvínsglas.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál