Kaffidrykkjufólk kom saman og átti góða stund í Norr11 þegar fyrirtækið Sjöstrand var kynnt. Grunnhugmyndin á bakvið Sjöstrand er að selja vélar með klassíska hönnun sem stenst tímans tönn. Kaffihylki okkar innihalda 100 prósent lífrænt kaffi, þau brotna niður í náttúrunni og eru því mjög umhverfisvæn.
Sjöstrand var stofnað á Ingarö í Skerjagarðinum fyrir utan Stokkhólm. Þrátt fyrir að vörurnar seljast nú út um allan heim þá leggjum við okkar hjarta í merkið, innblásturinn kemur frá sænskri náttúru, nálægðinni við stórborgina og ástríðunni fyrir kaffi.
Í kaffipartíinu var boðið upp á kaffi og með því og eins og sjá á myndunum brostu allir hringinn.