RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, var opnuð í sextánda sinn, með pompi og prakt í Háskólabíói í gær. Á meðal gesta hátíðarinnar voru Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, og dóttir hennar Ástríður Magnúsdóttir.
Hrönn Marinósdóttir mætti ásamt Elfari Aðalsteins leikstjóra opnunarmyndarinnar End of Sentence og bandaríska leikararnum John Hawkes.
Handritshöfundurinn Margrét Örnólfsdóttir mætti ásamt leikkonunum Álfrúnu Örnólfsdóttur og Tinnu Hrafnsdóttur svo einhverjar séu nefndar.
Hrannar Pétursson, nýr aðstoðarmaður menntamálaráðherra, lét sig ekki vanta og mætti ásamt eiginkonu sinni Margréti Arnardóttur og dóttur þeirra Signýju Sóllilju Hrannarsdóttur.
Ómar Ragnarsson fylgdist með hátíðinni. Eins mættu kvikmyndagerðarmennirnir Karl Ágúst Guðmundsson og Alexander Sær Elfarsson.
Hrönn Marinósdóttir, Elfar Aðalsteinsson leikstjóri End of Sentence og leikarinn John Hawkes.mbl.is/Eggert Jóhannesson