Fjölmargir tóku forskot á jólaverslunina á miðvikudagskvöldið á jólakvöldi Húsgagnahallarinnar og skein gleðin úr andlitum viðstaddra. Bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónsson tóku lagið og var ekki annað að sjá en að þeir bræður væru komnir í jólaskap nú í nóvemberbyrjun.