Íslensk-slóvakíska kvikmyndin Kotungsríkið (Little Kingdom / Malá rísa) var frumsýnd í gær í Bíó Paradís við Hverfisgötu í Reykjavík á Stockfish Kvikmyndahátíðinni við góðar undirtektir áhorfenda. Um er að ræða frumsýningu á Norðurlöndunum.
Kvikmyndahátíðin fer fram í Bíó Paradís dagana 20. til 30. maí. Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin fer fram og í ár er lögð sérstök áherzla á ungar meistaraleikstýrur.