Baltasar og Sunneva létu sig ekki vanta

Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weiss­happ­el í opnunarhófi RIFF.
Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weiss­happ­el í opnunarhófi RIFF. mbl.is/Kristinn Magnússon

Heitasta par bæjarins, leikstjórinn Baltasar Kormákur og listakonan Sunneva Ása Weiss­happ­el, lét sig ekki vanta í opnunarhóf RIFF sem fram fór í Gamla bíó á fimmtudaginn. Kvikmyndahátíðin hófst 30. september og stendur til 10. október. 

Samband Hollywood-leikstjórans og listakonunnar komst í fréttir vorið 2019. Hún mætti með honum á Evr­ópsku kvik­mynda­verðlaun­in í Berlín sama ár. Alvara hefur færst yfir sambandið en í september greindi Smartland frá því að þau væru skráð í sambúð. 

Parið voru ekki einu stjörnurnar á svæðinu en Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og leikkonan Aníta Briem sáust til að mynda spjalla saman við barinn með bjór í hendi.

Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri og Aníta Briem leikkona.
Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri og Aníta Briem leikkona. mbl.is/Kristinn Magnússon
Tónlistarfólk héldu uppi stuðinu.
Tónlistarfólk héldu uppi stuðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál