Það var sannarlega líf og fjör í Vesturbænum á laugardagskvöld þegar þorrablót Vesturbæjar fór fram með glæsibrag í Frostaskjólinu. Guðmundur Benediktsson, betur þekktur sem Gummi Ben, stýrði gleðskapnum sem fór fram með eindæmum vel þrátt fyrir að 900 manns hafi komið saman til að taka forskot á þorrann tæpri viku fyrir bóndadag.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, tók sér frí frá kjaradeilu SA og Eflingar og klæddi sig upp í sitt fínasta púss til að gleðjast. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, og eiginmaður hennar, Snorri Stefánsson lögmaður, gerðu sér sömuleiðis glaðan dag.
Sóli Hólm hélt fjörinu gangandi þar til hljómsveitin Bandmenn tók við keflinu ásamt Sölku Sól og dönsuðu Vesturbæingar glaðir inn í nóttina.