5 af 9 í vinkonuhópnum eru einhleypar og eftirsóttar

Barbara Hafdís Þorvaldsdóttir, Dagný Ýr, Kristjánsdóttir, Hanna Rún Ingólfsdóttir, Heiða …
Barbara Hafdís Þorvaldsdóttir, Dagný Ýr, Kristjánsdóttir, Hanna Rún Ingólfsdóttir, Heiða Kristjánsdóttir og Valgerður Ingólfsdóttir. Samsett mynd

Ólöf Rún Ásgeirsdóttir tilheyrir föngulegum vinkonuhópi sem telur níu konur á aldursbilinu 29 til 37 ára. Fimm þeirra eru einhleypar og er Ólöfu Rún annt um að kynna þær fyrir góðum einhleypum körlum og koma þeim út, enda gullfallegar, skemmtilegar og fyndnar konur. 

„Við vinkonurnar höfum þekkst mislengi en tölum saman á hverjum degi, hittumst mjög reglulega og erum með alls konar skipulagða viðburði á hverju ári eins og árshátíð, litlu jól og margt fleira. Hópurinn kallar sig BBQ, en við kunnum samt ekkert að grilla,“ segir Ólöf Rún og hlær. 

„Ég fæ misgóðar undirtektir“

Ólöf Rún fylgist vel með öllum skilnaðarfréttum, einhleypa-listum og einhleypingum á veraldarvefnum, en hún grandskoðar einnig vini og vinnufélaga eiginmanns síns í von um að rekast á góða karlmenn á lausu. Allar upplýsingar um álitlega vonbiðla sendir hún rakleiðis á einhleypu konurnar í BBQ-hópnum í von um mögulega framtíðarmaka. „Ég fæ misgóðar undirtektir en eins og ég segi alltaf: „Þetta er ekki spurning um hvað maður vill heldur hvað mann vantar,“ útskýrir hún.

Vinkonuhópurinn BBQ! Ólöf Rún Ásgeirsdóttir, Agnes Ýr Arnarsdóttir, Brynja Eyþórsdóttir, …
Vinkonuhópurinn BBQ! Ólöf Rún Ásgeirsdóttir, Agnes Ýr Arnarsdóttir, Brynja Eyþórsdóttir, Aþena Eydís Kolbeinsdóttir, Dagný Ýr Kristjánsdóttir, Hanna Rún Ingólfsdóttir, Valgerður Ingólfsdóttir, Heiða Kristjánsdóttir og Barbara Hafdís Þorvaldsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Ólöfu Rún fannst kjörið að nýta tækifærið og „auglýsa“ einhleypu vinkonur sínar enda líklegt að einhverjir góðir einhleypir karlmenn kíki á síður mbl um helgina. 

Barbara Hafdís Þorvaldsdóttir - 34 ára 

„Hún er algjör ofurkona, klár og drífandi. Hún getur gert upp hús og það án aðstoðar, útskýrt verðtryggingu og bara aðstoðað alla við flestallt.

Barbara Hafdís sinnir starfi svo flóknu að fæstir skilja almennilega hvað það er sem hún starfar við, en hún er „database manager“. Hún er algjör þokkagyðja sem fer vart framhjá neinum,“ segir Ólöf Rún um vinkonu sína. 

„Ótrúlega falleg, skemmtileg og flott kona.“
„Ótrúlega falleg, skemmtileg og flott kona.“ Ljósmynd/Aðsend

Dagný Ýr Kristjánsdóttir - 33 ára 

„Dagný Ýr er ofurkroppur og algjör húmoristi. Hún er alltaf í góðu skapi og til í eitthvað skemmtilegt, enda mikil keppnismanneskja. Dagný Ýr starfar sem viðskiptastjóri hjá Sjóvá og elskar CrossFit.“

„Dagný Ýr er allur pakkinn, falleg, klár, góðhjörtuð og skemmtileg,“ …
„Dagný Ýr er allur pakkinn, falleg, klár, góðhjörtuð og skemmtileg,“ segir Ólöf Rún. Ljósmynd/Aðsend

Hanna Rún Ingólfsdóttir - 34 ára 

„Hanna Rún er konan með stóra hjartað, en hún er falleg að innan sem utan og ávallt til staðar þegar þú þarft á henni að halda. Hanna Rún starfar sem deildarstjóri á leikskóla í Reykjavík og er algjör söngdrottning. Í vinahópnum heldur hún Íslandsmeistaratitilinn í karaókí.“

„Hún er gullfalleg, skemmtileg og fyndin,“ segir Ólöf Rún um …
„Hún er gullfalleg, skemmtileg og fyndin,“ segir Ólöf Rún um vinkonu sína. Ljósmynd/Aðsend

Heiða Kristjánsdóttir - 37 ára 

„Heiða er mjög hrífandi og ótrúlega góðhjörtuð kona. Hún gerir sér enga grein fyrir eigin kynþokka, en þvílíkur kroppur og fegurðardís sem hún er.“

„Heiðar starfar sem forstöðukona hjá Kópavogsbæ og hún er yfirmaður …
„Heiðar starfar sem forstöðukona hjá Kópavogsbæ og hún er yfirmaður sem allir myndu vilja hafa.“ Ljósmynd/Aðsend

Valgerður Ingólfsdóttir - 29 ára 

„Valgerður er algjör fegurðardís og hörkudugleg. Hún er fyrrverandi flugfreyja og starfar í dag sem viðskiptafræðingur, förðunarfræðingar og sölukona. Valgerður er ótrúleg skemmtileg, lífsglöð og til í alls kyns vitleysu.“

„Valgerður er ein af þessum konum sem er alltaf falleg, …
„Valgerður er ein af þessum konum sem er alltaf falleg, frá því hún vaknar þar til hún fer að sofa. Hún er með guðdómlegt hár og alveg ótrúlega hvítar tennur,“ segir Ólöf Rún. Ljósmynd/Aðsend

 Kæru einhleypu menn, eftir hverju eru þið að bíða?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál