Ungur maður sem vill stunda meira kynlíf en hann gerir leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun.
Kæra Deidre, ef ég stunda ekki kynlíf verð ég slæmur í skapinu en kynlífið með kærustunni er alveg dottið niður. Ég vil ekki vera náinn einhverjum öðrum, ég vil bara meira kynlíf með kærustunni minni.
Við höfum verið saman í tvö ár. Í byrjun stunduðum við frábært kynlíf en svo var ég sendur til þess að vinna í skrifstofu 320 kílómetra í burtu þannig við sáum bara hvort annað aðra hvora helgi. Nú er ég kominn aftur heim en það er miklu minna kynlíf en það var í byrjun sambandsins. Þegar ég er með henni er erfitt að hugsa ekki um kynlíf. Ég er svo pirraður.
Ráðgjafinn bendir manninum á að það hafi orðið hlé á kynlífinu þegar hann var í burtu.
Þegar þú komst aftur heim þurfti kærasta þín örugglega á því að halda að þú reyndir við hana aftur og þið byggðuð þannig upp reglulegt kynlíf, rétt eins og þið væruð í nýju sambandi. Þú ættir líka að athuga hvort að hún hafi notið kynlífsins jafnmikið og þú.