Yngsta barnið er uppáhalds

Leikarasystkinin Maggie Gyllenhaal og Jake Gyllenhaal. Jake er yngr, ætli …
Leikarasystkinin Maggie Gyllenhaal og Jake Gyllenhaal. Jake er yngr, ætli hann sé í uppáhaldi? AFP

Eldri systkini vilja oft meina að það yngsta sé það dekraðasta í systkinahópnum. Það getur vel verið enda bendir ný könnun til þess að yngsta barnið sé það barn sem er í uppháhaldi hjá foreldrum. 

Þrátt fyrir að fólk ætti ekki að gera upp á milli barnanna sinna þá viðurkenna 25 prósent af þeim foreldrum sem tóku þátt í könnun sem Independent  greinir frá að eiga uppháhaldsbarn. 61 prósent þeirra sögðu að yngsta barnið væri í uppáhaldi. Því miður fyrir þau sem eru elst í systkinahópnum voru bara 26 prósent sem sögðu að elsta barnið væri uppáhalds. 

Þóttu eldri systkinin vera erfið og frek. Nærri helmingur foreldra sem áttu sér uppáhaldsbarn sögðu að barnið sem væri í uppáhaldi minnti það á þau sjálf. Yfir helmingur sagði auk þess að uppáhaldsbarnið fengi sig til að hlæja meira en hin börnin. 

Blue Ivy Carter er elsta barn Beyoncé.
Blue Ivy Carter er elsta barn Beyoncé. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál