Hvað myndi Scarlett Johansson gera?

Eyðilagðir þú þetta samband Scarlett Johansson?
Eyðilagðir þú þetta samband Scarlett Johansson? mbl.is/AFP

Þær eru jafnmismunandi og þær eru margar, spurningarnar sem E.Jean, ráðgjafi Elle, fær. Nú er það kona sem á í vandræðum með kærastann sinn, hann er nefnilega skotinn í Scarlett Johansson og vill ekki stunda kynlíf með henni.

„Kæra E. Jean, kærastinn minn er skotinn í Scarlett Johansson. Allt í lagi, ég veit að allir eru skotnir í frægri manneskju, en ég lít ekkert út eins og hún. Ég er dökkhærð, strákslega vaxin, með lítil brjóst. Þegar við byrjuðum saman flugu neistar, en eftir ár saman segir hann að hann sé stressaður út af vinnunni og vill ekki stunda kynlíf. Við stunduðum kynlíf á hverjum degi! Við höfum stundað kynlíf á tveggja vikna fresti upp á síðkastið. Laðast hann allt í einu ekki að mér? Erum við að verða goslaus? Er ég ekki hans týpa?“

„Elskan mín, plís. Auðvitað er hann hrifinn af Scarlett Johansson. Ef Scarlett Johansson og báðar þingdeildirnar væru fastar í brennandi húsi myndu allir bjarga Scarlett fyrst. Spurðu þig einnar spurningar, HMSG? Hvað Myndi Scarlett Gera við gaur sem neitaði að sofa hjá henni?

Rétt. Það fyrsta sem þú hugsaðir er rétta svarið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál