Gummi sendi Línu fyrstu skilaboðin

Gummi Kíró sendi Línu skilaboð og bauð henni á stefnumót.
Gummi Kíró sendi Línu skilaboð og bauð henni á stefnumót. Skjáskot/Instagram

Áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir fór fögrum orðum um kærasta sinn, Guðmund Birki Pálmason, í sinni nýjustu færslu á Instagram. Þar greinir Lína einnig frá því að Guðmundur, sem oftast er kallaður Gummi Kíró, hafi sent henni fyrstu skilaboðin sem voru kveikjan að ástarsambandi þeirra. 

Orð fá því ekki lýst hvað ég er þakklát fyrir að þessi maður hafi sent mér skilaboð á instagram og sagt að hann gæti ekki hætt að hugsa um mig og vildi endilega bjóða mér á deit,“ skrifar Lína.

Lína og Gummi fóru fyrst að sýna frá hvort öðru á samfélagsmiðlum í febrúar á þessu ári þegar þau skelltu sér til London saman. Síðan þá hefur ástin blómstrað hjá Línu og Gumma.

„Fyrir ykkur sem þekkið Gumma ekki neitt þá er hann algjör andstæða við það hvernig „hann lítur út & klæðir sig“ ef ég má orða það þannig. Hann er skólabókadæmi um að það á aldrei að dæma bók eftir kápunni. Fólk á það nefnilega til að halda að hann sé „svona & svona“ útaf hann er með mörg flúr & klæðir sig pínu örðuvísi. Oftar en ekki þá segir fólk við mig „vá hann er allt örðuvísi en ég hélt“ sem mér persónulega finnst frábært.

Gummi er án gríns ein besta sál sem ég hef kynnst 🤍 Hann er jarðtengdur, hann er hugulsamur, hann kann að hlusta, hann er einn sá þolinmóðasti & án efa einn sá góðasti (ef það er orð),“ segir Lína.

View this post on Instagram

Orð fá því ekki lýst hvað ég er þakklát fyrir að þessi maður hafi sent mér skilaboð á instagram og sagt að hann gæti ekki hætt að hugsa um mig og vildi endilega bjóða mér á deit 🤍 Þessi póstur er enginn glansmynd heldur 100% sannleikur & ég ætla að tileinka Gumma hann. Fyrir ykkur sem þekkið Gumma ekki neitt þá er hann algjör andstæða við það hvernig “hann lítur út & klæðir sig” ef ég má orða það þannig. Hann er skólabókadæmi um að það á aldrei að dæma bók eftir kápunni. Fólk á það neflilega til að halda að hann sé “svona & svona” útaf hann er með mörg flúr & klæðir sig pínu örðuvísi. Oftar en ekki þá segir fólk við mig “vá hann er allt örðuvísi en ég hélt” sem mér persónulega finnst frábært 👏 Gummi er án gríns ein besta sál sem ég hef kynnst 🤍 Hann er jarðtengdur, hann er hugulsamur, hann kann að hlusta, hann er einn sá þolinmóðasti & án efa einn sá góðasti (ef það er orð) 😅 Ætli ég endi þennan póst ekki á því að segja að ég sé ein þakklát kona & vona að þið hafið það gott 🤍

A post shared by Lína Birgitta (@linabirgittasig) on Aug 19, 2020 at 5:44am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál