Leikkonan Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason eru trúlofuð. Í gær uppfærðu þau hjúskaparstöðu sína á Facebook.
Parið hefur verið áberandi í menningarlífi borgarinnar og það fór ekki framhjá neinum þegar þau hnutu hvort um annað haustið 2014. Síðan þá hafa þau verið eins og samlokur.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með ráðahaginn.