Elísabet önnur Englandsdrottning klæddist silfurlituðum skóm þegar hún mætti til Order of the Garter á mánudaginn. Vanalega klæðist drottningin svörtum skóm en á þessum tiltekna viðburði klæðist hún alltaf silfurlituðum skóm. Viðburðurinn er árlegur og á rætur sínar að rekja allt til ársins 1348. Þá eru einstaklingar sem hafa lagt sitt af mörkum til samfélagsins heiðraðir á viðburðinum.