Bárður og Linda Björg gifta sig í sumar

Bárður Sigurgeirsson og Linda Björg Árnadóttir ganga í hjónaband í …
Bárður Sigurgeirsson og Linda Björg Árnadóttir ganga í hjónaband í sumar.

Linda Björg Árnadóttir hönnuður, eigandi Scintilla og lektor við Listaháskóla Íslands, ætlar að giftast Bárði Sigurgeirssyni húðlækni á Húðlæknastöðinni hinn 22. júní á þessu ári. Hún hefur verið gift áður en leggur ólíka merkingu í þetta brúðkaup. 

„Ég hef aldrei haft neinn áhuga á eða beinlínis skilið almennilega borgaralegar hefðir eins og brúðkaup en ég hef samt gift mig tvisvar áður. Í fyrra skiptið var það meira sem brandari og var ákveðið með mjög litlum fyrirvara og í seinna skiptið var það gert af praktískum ástæðum. Núna er ég að gifta mig vegna þess að mig raunverulega langar til þess og ég vil að allir viti það.“

Er ákveðin sjálfsvirðing fólgin að þínu mati í að gera hlutina vel?

„Já, ég tel mig almennt reyna að gera hlutina vel. Í þetta skiptið er ég að vanda mig mjög mikið. Þetta skiptir mig mjög miklu máli. Ég er mjög viss um að ég sé að gera rétt.“

Hvernig er að setja saman tvær fjölskyldur?

„Við eigum bæði þrjú börn með öðrum sem eru flest orðin fullorðin. Það er okkar von að allir geti umgengist hver annan af virðingu og sanngirni. Við vonum að við getum orðið einhvers konar fjölskylda þar sem fólk getur notið hvert annars sem og fengið stuðning hvert frá öðru. Við Bárður viljum bara reynast okkar fólki vel og styðja það í hverju sem það tekur sér fyrir hendur.“

Hvernig verður brúðkaupið?

„Við munum gifta okkur í Hallgrímskirkju og veislan verður í Gamla bíó. Sonur minn Styr mun ganga með mér inn gólfið og gefa mig. Hann hefur verið aðalmaðurinn í mínu lífi og reynst mér einstaklega vel. Ég hef druslað honum út um allan heim í alls konar ævintýri og nú tekur hann þátt í þessu með mér og verður einnig veislustjóri ásamt elsta syni Bárðar. Ég mun leggja áherslu á góða tónlist í veislunni en ég er í hljómsveit með börnunum mínum þar sem ég spila á trommur. Hugsanlega munum við leggja amerískri vinkonu minni, ljósmyndaranum Ami Sioux, lið, en hún mun spila nokkur lög í veislunni.“

Í hverju verður brúðurin?

„Ég verð ekki í hefðbundnum brúðarkjól og ekki í hvítum kjól. Kjóllinn er hannaður af breska hönnuðinum Roksöndu Ilincic og skórnir verða rauðir. Ég verð ekki með slör, hef aldrei skilið það fyrirbæri og tel það vera fyrir hjónabönd þar sem brúður og brúðgumi hafa ekki séð hvort annað fyrr en við athöfnina. Ég mun velja mér mjög persónuleg blóm í vöndinn en ég hef mjög ákveðnar skoðanir á blómum.

Ég er ekki mikið fyrir rósir og vil helst nota einhver óhefðbundin blóm. Það hefur alltaf skipt mig miklu máli að koma á óvart. Það er ekkert leiðinlegra en það sem er fyrirsjáanlegt. Ég hef leitað í myndlist og kvikmyndir að hugmyndum og stemningu. Skórnir verða ekki ósvipaðir skóm Dorothy í Galdrakarlinum í Oz. Litir verða svartur, bleikur og rauður. Svo bæti ég bara við eins og hentar. Það liggur vel við mér að leyfa hlutum að gerast óvænt og lifa í núinu. Það er miklu skemmtilegra þegar gefið er rými fyrir hið óvænta.“

Hvernig undirbjóstu hugmyndavinnuna að baki brúðkaupinu?

„Ég hef reynt að hafa sem minnst fyrir þessu. Ég er ekki hrifin af því þegar brúðkaup eru of skipulögð og of miklu tjaldað til. Okkur langar bara að eiga fallegan dag og gott partí með fjölskyldu og vinum. Við höfum engan áhuga á að vera eitthvað að sýnast. Við viljum bara vera einlæglega hamingjusöm og njóta þess með okkar nánustu.“

Hvað er ást að þínu mati?

„Það sem skiptir mestu máli er gagnkvæm virðing og góðvild. Það þarf líka að vera gaman saman alltaf og maður verður að geta verið algerlega heiðarlegur og sagt allt sem maður hugsar. Ég hef aldrei þolað tilgerð og þegar fólk kemur ekki hreint fram. Ef fólk er heiðarlegt hvert við annað verður til traust. Þetta er grundvöllur þess að geta elskað á fallegan hátt.“

Hvað viltu segja við þá sem hafa gefist upp á ástinni?

„Vera með opinn huga. Mér finnst margir hafa lokað á möguleikana í lífinu. Svo er mikilvægt að geta breyst sjálfur. Skilið gömlu sjálfsmyndina eftir og haldið áfram.“

Hvernig verður brúðartertan, skiptir hún máli?

„Nei, ég held ég sleppi henni. Það verður einhver góður eftirréttur með kaffinu.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál