Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins er á lausu eftir að upp úr sambandi hennar og Garðars Kjartanssonar slitnaði.
Parið naut lífsins þegar þau voru saman en Garðar starfar í veitingabransanum. Hann rak Óðal og Nasa á sínum tíma en nú er hann að undirbúa opnun skemmtistaðar við Laugaveg þar sem bókabúð Máls og menningar var áður til húsa.
Staðurinn mun heita Bókabúðir Máls og menningar og verður með leyfi fyrir 300 manns. Opið verður frá klukkan 12 alla daga.
„Við opnum um leið og Víðir leyfir,“ segir Garðar Kjartansson veitingamaður sem mun reka staðinn en hann sagði frá áformum sínum í Morgunblaðinu á dögunum.