Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi Miðflokksins og Garðar Kjartansson fasteignasali nutu veðurblíðunnar saman um helgina.
Vigdís hefur verið á lausu í töluverðan tíma en nú virðist hún vera búin að finna sálufélaga sinn í Garðari. Í dag starfar hann sem fasteignasali en hann rak Nasa um tíma og líka Óðal við Austurvöll.
Eins og sést á myndinni nutu þau veðurblíðunnar um helgina og voru í sólskinsskapi.