Vonar að 13. október verði búið að aflétta öllu

Kári og Sölvi fóru um víðan völl.
Kári og Sölvi fóru um víðan völl. mbl.is/Styrmir Kári

Kári Stefánsson er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar. Í þættinum fara Kári og Sölvi yfir Covid-tímabilið, hve lengi er hægt að halda áfram að grípa inn í líf fólks, mikilvægi þess að óvinsælar raddir fái að heyrast og margt fleira.

Kári segir sóttvarnaaðgerðir augljóslega gífurlegt inngrip í líf fólks og það verði alltaf að vega og meta hvenær sé of langt gengið.

„Það er alls ekki æskilegt að vera með þessar hömlur á lífi fólks. Við erum að taka af fólki borgararéttindi, réttindi til að koma saman, stunda atvinnu sína og svo framvegis. Þetta eru mjög alvarlegar skerðingar á borgararéttindum. Og ég er ekki í nokkrum vafa um það að þessar aðgerðir hafa nú þegar haft mikil áhrif á efnahag og afkomu ákveðins hundraðshluta þessarar þjóðar. Samfélagið er að grípa til þessara aðgerða og samfélagið hefur því þá skyldu á sínum herðum að sjá til þess að þetta bitni ekki harkalegar á þeim sem vinna við þá atvinnu sem geldur mest fyrir þessar aðgerðir. Við komumst ekki áfallalaust út úr þessu nema viðurkenna þessa skyldu okkar sem samfélags,“ segir Kári og heldur áfram.

„Auðvitað þurfum við að eiga umræður um hvenær þessi inngrip í líf fólks eru réttlætanleg. Það voru sett sóttvarnalög sem veita hinu opinbera býsna víðtækar heimildir til þess að skerða borgararéttindi. Ég held að það sé alltaf óæskilegt að skerða þessi réttindi og menn eiga ekki að gera það nema það séu mjög ríkar ástæður til þess. Allar tilraunir til þess að kæfa umræðu um þetta eru óæskilegar. Við eigum að leyfa þeim sem eru á móti þessum aðgerðum að tjá sig af krafti og við eigum að hlusta á það, engin spurning. En endanlega er ég alveg viss um að við munum verða frekar stolt af því hvernig við tókumst á við þetta sem þjóð.“

Kvartaði einu sinni eftir bólusetningu

Kári segist mjög bjartsýnn á að búið verði að aflétta öllum Covid-aðgerðum næsta haust.

„Þegar það verður búið að bólusetja 200 til 250 þúsund Íslendinga ættum við að geta vonast til þess að lífið verði komið í nokkurn veginn eðlilegt horf. Ég vonast til þess að 13. október verði búið að aflétta þessu öllu. Það er góður dagur og þá verður vonandi búið að aflétta öllum aðgerðum,“ segir Kári, sem sjálfur fékk bólusetningu nýlega.

„Það er búið að bólusetja mig einu sinni. Fyrri bólusetning með AstraZeneca. Ég kvartaði ekki yfir neinu eftir bólusetninguna, fyrr en það var farið að skamma mig daginn eftir fyrir að hafa ekki farið út með ruslið. Þá gat ég notað það sem afsökun að hafa verið bólusettur daginn áður.“

13. október er dagurinn

Kári segist sjálfur hafa nýtt sér tæknina til að halda sambandi við dætur sínar og barnabörn.

„Ég á barnabörn á Íslandi og í Ameríku. Ég hef það fyrir sið að hringja á Facetime til dóttur minnar í Los Angeles á hverju kvöldi áður en ég fer að sofa. Þessi tækni sem menn hafa tilhneigingu til að tala niður hefur bjargað lífi mínu á síðasta ári. Ég hef fengið að sjá framan í Markús Kára, Alexander Róbert og Leó Kristján vini mína og það er mikils virði. Ég hef líka getað talað við Sólveigu dóttur mína úti í Berlín og séð hundinn hennar, sem hún hefur bundist mjög sterkum böndum á stuttum tíma,“ segir Kári, sem er handviss um að hann geti hitt dætur sínar og barnabörn í Bandaríkjunum næsta haust.

„Ég er alveg handviss um að ég get farið út og hitt þau eftir 13. október. Það sagði mér fugl að það yrði dagurinn. Það er handan við hornið og þá verður maður búinn að eiga enn eitt sumar í þessu dásamlega landi sem við búum í. Og nú reikna ég með að aðdráttarafl þessa lands verði enn meira eftir eldgosið. Mér þykir mjög vænt um ferðamannaiðnaðinn og það er frábært að leyfa aðgangi heimsins að koma hingað og heimsækja okkur og sjá hvað við búum í fallegu landi. En ég held að það hafi ekki verið annar kostur en að setja þessar takmarkanir á meðan pestin er að herja á heiminn. 

Í þættinum fara Kári og Sölvi yfir síðastliðið ár, hvað hefur verið vel gert og hvað ekki, hvenær kemur að þeim punkti að hætta verður stóru inngripi í líf fólks og margt margt fleira.

Þáttinn má finna í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is og í spilaranum hér fyrir neðan.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál