Landsmenn kunna að gera sér glaðan dag eins og sást á félagsmiðlinum Instagram í liðinni viku. Hrekkjavakan var tekin með stæl og þeir sem ekki fóru í búning fóru á rúntinn.
Tónlistarmaðurinn Saga B. lét fara vel um sig í mjúkum leðursætum Merceses Benz-bifreiðar.
Dansarinn Tara Sif Birgisdóttir var lögreglukona á Hrekkjavökunni en unnusti hennar var fangi. Eins og sést voru þau hlekkuð saman.
Guðmundur Birkir Pálmason, eða Gummi kíró eins og hann er kallaður, segir að stundum sé skartið aðalmálið þegar kemur að klæðaburði. Hér klæðist hann látlausum gallajakka og mosagrænni peysu undir. Úrið er hinsvegar áberandi.
Ástrós Traustadóttir var afslöppuð á sunnudaginn í stórum gallabuxum og stórum leðurjakka.
Enok og Birgitta Líf Björnsdóttir klæddu sig í stíl á Hrekkjavökunni.
Sunneva Eir Einarsdóttir og Benedikt Bjarnason fóru alla leið á Hrekkjavökunni. Útlit parsins minnti á klæðnað Pamelu Anderson og Tommy Lee þegar allt lék í lyndi hjá því Hollywood-pari.
Camilla Rut Rúnarsdóttir klæddist glansandi plastgalla þegar hún lék í sýningunni Grease um helgina. Eins og sést á myndinni ætti hún aldrei að klæðast neinu öðru.
Alda Guðrún Jónasdóttir klæddi sig upp á um helgina og fór á tónleika með Skálmöld.
Onlyfans-stjarnan Edda Lovísa klæddi sig í búning í tilefni af Hrekkjavökunni.
Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir lét þreytuna líða úr sér í heitum pottum.
Tanja Ýr lét rigninguna á Miami á Flórída ekki eyðileggja stemninguna.
Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Ólafsdóttir og kærasti hennar Gunnar Patrik Sigurðsson létu ekki sitt eftir liggja á hrekkjavökunni og klæddu sig upp í Top Gun búninga.
Jóhanna Helga Jensdóttir raunveruleikastjarna og kærasti hennar Geir Ulrich klæddu sig upp sem Angelina Jolie og Brad Pitt í kvikmyndinni Mr. & Mrs. Smith.
Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson fagnaði 37 hringjum í kringum sólina með fjölskyldu sinni í sólinni. Fjölskyldan fagnaði deginum með að fara út að borða á Benihana.
Crossfit-stjarnan Annie Mist Þórisdóttir fer heim með silfurpening af Rogue boðsmótinu sem fór fram í Texas í Bandaríkjunum um helgina. Annie keppti í einstaklingskeppni um helgina, en það hefur hún ekki gert síðan á sama móti fyrir ári síðan, þar sem hún keppti með liði á heimsleikunum í Crossfit í ágúst.
Samfélagsmiðlastjarnan Kara Kristel Signýjardóttir er stolt af þeirri konu sem hún er að verða.
Tónlistarkonan Selma Björnsdóttir tróð upp á árshátíð Síldarvinnslunnar sem haldin var í Gdansk í Póllandi um helgina. Henni til halds og traust voru Ísabella Rós Þorsteinsdóttir, Kolbrún María Másdóttir og Erna Hrönn Ólafsdóttir.
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur og áhrifavaldur, er komin í fæðingarorlof og bíður nú eftir barni. Hún skellti sér í bumbumyndatöku á dögunum og myndirnar komu sannarlega vel út.
Það vantar aldrei glamúrinn hjá Helgu Margréti Agnarsdóttur sem skálaði í bleikum glimmer kjól á dögunum.