Las eina bók á dag í fangelsinu

Herbert Guðmundsson er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar.
Herbert Guðmundsson er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar.

Tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson hefur lifað viðburðarríku lífi. Hann verður sjötugur á næsta ári og gerir ýmislegt til að halda sér ungum, bæði sál og líkama. Hann fastar reglulega og segist finna hvernig frumurnar og húðin byrja að endurnýja sig. Herbert er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar. 

„Ég mældist of hár í sykri og held honum því í lágmarki og eftir síðasta „detox“ ákvað ég að vera mjög lágur í kolvetnum og borða nánast eftir ketó-matarræði flesta daga. Ég fer líka reglulega í detox, þar sem ég borða innan við 500 hitaeiningar á dag, eingöngu safa og súpu. Mér finnst það algjört lykilatriði að gefa líkamanum reglulega hvíld á að melta allan daginn. Síðast tók ég átta daga á þessari föstu, en ég hef tekið allt að 14 dögum. Þetta finnst mér það besta sem ég geri fyrir líkamann. Maður yngist allur upp og finnur bara að frumurnar og húðin byrja að endurnýja sig. Svo hef ég alltaf talað fallega við sjálfan mig og verið jákvæður og bjartur í orðum og athöfnum. Þegar ég tók sjálfan mig í gegn og hætti að drekka og dópa var hluti af prógramminu líka að hætta að tala illa um annað fólk.“

Herbert er líka mjög trúaður og segir það eflaust hjálpa, auk þess sem trúin geri líf hans mun innihaldsríkara á allan hátt.

„Ég fer alla daga með bænir, bæði kvölds og morgna og reyni að lesa mikið í orðinu. Það er búið að skrá leiðsögn í hundruð ára sem er ótrúleg ef maður leyfir sér að kafa ofan í það. Ég hef alltaf verið trúaður, alveg frá því að amma mín kenndi mér bænir þegar ég var lítill strákur. Svo fór maður á gelgjuna og þá fór ég í uppreisn, en síðan byrjaði ég bara aftur. Ég fór í búddismann í mörg ár, sem var frábær skóli, þar sem ég kyrjaði kvölds og morgna. En svo var það í sporavinnunni sem ég fékk einhvers konar fullvissu um æðri mátt og þá fór ég aftur í upprunann til drottins. Ég stunda bæn og hugleiðslu mjög reglulega, stundum bara í bílnum og alltaf áður en ég spila á tónleikum. Það hjálpar mér að vera í flæðinu og gerir líf mitt innihaldsríkara á allan hátt.“

Öflugur sölumaður

Herbert hefur ekki setið auðum höndum í gegnum tíðina. Hann lærði meðal annars að vera ísgerðarmaður og rak ísbúðir bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Svo er hann þekktur fyrir að vera einn öflugasti sölumaður Íslandssögunnar, sérstaklega í sölu á bókum.

„Ég var alltaf söluhæsti sölumaðurinn hjá Erni og Örlygi og þegar ég hætti þar var ég búinn að selja bækur fyrir 380 milljónir. Ég held að lykillinn að því sé hvað mér fannst gaman að hitta fólk. Ég bara fyllti bílinn af bókum og svo keyrði ég af stað og bankaði á dyr og dinglaði dyrabjöllum. Erfiðasta en skemmtilegasta sölumennskan er að ganga bara á milli húsa og selja. Það var sérstaklega gaman þegar ég fór ferðir í kringum landið og bankaði upp á hjá mönnum sem sögðust alls ekki ætla að kaupa neitt af mér, en buðu mér í kaffi. Svo eftir smá spjall þar sem ég sýndi þeim áhuga og spjallaði við þá um daginn og veginn enduðu þeir á að kaupa af mér sett af bókum. Stærsta trixið í að selja er að sýna fólki áhuga, vera ekki of ýtinn og finna snertifleti við þann sem maður er að selja.“

Kom út sem betri maður

Eitt af því sem Herbert hefur upplifað í sínu ótrúlega lífshlaupi er að sitja í fangelsi, þar sem hann samdi sitt vinsælasta lag, Can't Walk Away.

„Þarna sannaðist það að vandamálin eru eldiviður framfaranna. Ég var settur í gæsluvarðhald og dæmdur fyrir að taka pakka með fíkniefnum í land þegar ég var kokkur á togara. Það var lágt á mér risið þegar ég var að raula lagið í fangaklefanum, en í dag lít ég á þetta sem skóla og reynslu. Ég las eina bók á dag í gæsluvarðhaldinu og var staðráðinn í að nota þennan tíma til að bæta mig og koma út sem betri maður. Þetta var auðvitað rosalegt sjokk og fyrstu dagarnir voru erfiðir, en svo varð ég að gera það besta úr stöðunni.

Þegar ég fékk gítarinn loksins inn til mín kom lagið til mín frekar fljótt: „Th­ere is a way every day, to the problems that man just can't turn away. Because in this life people try to walk away and say it's ok, but I've seen a terr­or screen and it build's up like a mon­ster machine. Got to look into all directions. Have to know, life has difficult questions, who have to look into all directions. Can't walk away.“

Þáttinn í heild sinni, sem og alla aðra þætti Sölva, má nálgast á SölviTryggva.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál